Search
Close this search box.

Work shop Excel

Maí námskeið hjá fræðslunefnd FVB 2017

Work shop Excel

ATH. námskeiðin verða send út með skype eins og áður fyrir landsbyggðina.

Námskeiðin verða haldin í Promennt Skeifunni 11b í tölvuveri,  mánudaginn 15.maí kl. 9.00-12.30 og þriðjudaginn 16.maí kl. 9.00-12.30.

Boðið verður uppá morgunverðar hressingu frá kl.  8.30-9.00

 

Fullt er orðið á námskeiðin 8.og 9.maí og 10.og11.maí

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið 15.og 16.maí 

Það er takmarkað sætaframboð á hvert námskeið

 

 

Kennari

Sigurður Friðriksson kennari og fyrrv. Skólastjóri. Hefur og er að kenna Excel hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins.

Námskeiðsefni mánudaginn 15. maí:

Á þessu námskeiði er farið í gegnum hagnýt atriði í notkun Excel og er fókusinn aðallega á helstu verkfæri Excel sem geta nýst  bókurum sem best í daglegri vinnu við úrvinnslu og framsetningu gagna í Excel ásamt áætlanagerð.  Kennslan fer fram í formi verklegra æfinga  þar sem þátttakendur vinna verkefni undir leiðsögn kennara. 

  • Sérstök áhersla lögð á allar aðgerðir sem hraða vinnslu í Excel ásamt flýtiskipunum og fylgir með hefti með upptalningu helstu flýtiaðgerða.
  • Notkun innbyggðra reiknifalla kennd og æfð.  Lögð er áhersla á að þátttakendur skilji uppbyggingu falla frá grunni . 
  • Helstu föllin sem tekin verða fyrir:  vlookup, if, sumif, countif, averageif, iferror, isblank
  • Dagsetningar og dagaföll í Excel ásamt daga og tímaútreikningi í Excel.
  • Nokkur fjármálaföll.  pmt, nv, pv, rate, irr ofl.
  • Hagnýt atriði með greiningarföll. (What if analysis, Data Validation og etv. Data Table)
  • Læsingar og aðgangsstýringar reita og svæða í Excel.  (Lock – Protection)
  • Innflutningur gagna í Excel.  (Import from Web,  .csv skjöl ofl)

Námskeiðsefni þriðjudaginn 16. maí:

Á þessu námskeiði verður tekið fyrir allt sem snýr að vinnu í Excel með stóra lista og gagnagrunna í Excel ásamt greiningu í Pivot töflum.  Eins og á fyrra námskeiðinu verður sérstök áhersla lögð á aðgerðir sem flýta fyrir og hraða vinnslu í Excel.  Verkelegar æfingar með lista og gagnagrunna í Excel.

  • Töflugerð og útlitsmótun taflna.  Farið í gegnum alla helstu kosti sem fylgja því að setja lista og gögn til vinnslu í „TABLE“.
  • Röðun og síun gagna í töflu með filterum og framsetning með gagna með skilyrðum.
  • Teknar verða fyrir allar aðgerðir og föll til útreikninga og úrvinnslu gagna í stórum gagnagrunnum.
  • Pivot greiningar.
  • Framsetning gagna í Pivot  með  „slicer“ og etv myndritum.
  • Önnur atriði:  Helstu verkfærin og aðgerðir undir File flipanum og stillingar forrits ef tími gefst til.

Þátttakendur fá Excel  vinnubók með öllum þeim aðgerðum sem unnið er með á námskeiðinu. Einnig fylgja  nokkur hefti á rafrænu formi með gagnlegum leiðbeiningum, Excel Tips&Trips, Custom number format ásamt líkönum til útreikninga á mismunandi lánaformum.

Það er ekki endilega skilyrði að taka fyrri hlutann til að hafa gagn af seinni hlutanum. 

Verð fyrir eitt námskeið 5.500 kr. en 9.500 fyrir bæði. Utanfélagsmenn greiða 8.000 kr. fyrir eitt námskeið en 14.000 fyrir bæði.    

Hvert námskeið  gefur 4,5 endurmenntunarpunkta.

Skráning er á vef FVB til og með 3. maí  Fjöldi þátttakenda takmarkast af fjölda tölva í kennslustofu.                                    

Fræðslunefndin

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur