Search
Close this search box.

RSK-Dómur.Skuldamál Reikn. v.skattuppgjörs ofl.:Bókhald og ráðgjöf Auditor ehf.gegn Premma

Mál þetta er einkum athyglisvert vegna kröfugerðar stefnda í málinu.

Í málinu var deilt um réttnæti reiknings frá bókhaldara til fyrirtækis.Fór bókhaldarinn í mál. Var dæmt honum í hag og fyrirtækinu gert að greiða. 

Af hálfu fyrirtækisins kom fram gagnkarfa  til skuldajafnaðar.  Um var að ræða kröfu um skaðabætur vegna tjóns sem bókhaldarinn hafi valdið því  með saknæmum og ólögmætum hætti.  Til stuðnings þeirri kröfu lagði fyrirtækið  fram úrskurði ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar þar sem fundið var að bókhaldi þess.  Voru gjaldstofnar til tekjuskatts vegna áranna 1995-1998 hækkaðir og 25% álag lagt á.  Byggði skaðabótakrafa fyrirtækisins á  því að bókhaldarinn hafi annast bókhald þess á þessu tímabili og beri að bæta það tjón sem hann olli fyrirtækinu með ófullnægjandi vinnu sinni.  Umfang tjónsins sé fjárhæð þess skatts sem fyrirtækinu var gert að greiða af álagi samkvæmt úrskurði yfirskattanefndar vegna áðurgreinds tímabils. Ekki taldist sannað í málinu að bókhaldarinn hefði tekið að sér umrædda vinnu og var gagnkrafan því ekki tekin til greina. 

Aðalkrafan í málinu laut að greiðslu reiknings   útgefinn af bókhaldaranum þann 29. september 2003, að fjárhæð kr. 232.900,-, vegna bókhaldsvinnu fyrir fyrirtækið árið 2002.  Var því ekkimótmælt af hálfu þess  að þessi vinna hafi verið innt af hendi og engar athugasemdir gerðar við fjölda unninna stunda eða tímagjald.  Í bréfi skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra er ástæða þess að skattframtal 2002 var ekki lagt til grundvallar álagningar opinberra gjalda 2002 sögð sú að vegna eldri mála sé ekki unnt að taka afstöðu til þeirra framtala sem á eftir koma.  Var því ekkert talið fram komið í málinu sem létti af fyrirtækinu þeirri skyldu að greiða stefnanda fyrir þá vinnu sem þegar hafði  verið innt af hendi. 

E-72/2006

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur