Search
Close this search box.

Reglugerð 535/2012 um próf til viðurkenningar bókara

1. gr.

Prófnefnd viðurkenndra bókara hefur umsjón með prófi til viðurkenningar bókara sam­kvæmt 43. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald.

Ráðherra skipar þriggja manna prófnefnd til fjögurra ára í senn. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, sbr. 26. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af Félagi viðurkenndra bókara. Einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skal skipa með sama hætti.

Ákvarðanir prófnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.

Prófnefnd skal rita fundargerðir. Í þær skal færa ákvarðanir nefndarinnar og niðurstöður prófa.

2. gr.

Próf skulu að jafnaði haldin einu sinni ár hvert og skal auglýsa þau í fjölmiðlum og á heima­síðu ráðuneytisins með a.m.k. átta vikna fyrirvara. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k. 30 þátttakendur hafi skráð sig í próf.

Ráðherra ákveður prófgjöld að fenginni tillögu prófnefndar. Skulu þátttakendur greiða próf­gjald fyrir þau tímamörk sem prófnefnd ákveður. Upplýsingar um fjárhæðir próf­gjalda skulu liggja fyrir í síðasta lagi fjórum vikum fyrir próf. Miða skal við að tekjur af gjald­inu standi undir kostnaði við prófið.

Gjald skv. 2. mgr. er endurkræft ef af prófi verður ekki.

Prófnefnd ákveður hvort haldið skal sjúkra- og upptökupróf gegn aukaprófgjaldi. Sjúkra- og upptökupróf skulu auglýst sérstaklega á heimasíðu ráðuneytisins. Slík próf skulu aðeins haldin ef þátttakendur eru a.m.k. 10.

3. gr.

Prófnefnd tekur ákvörðun um prófsefni það sem prófað er úr. Prófið skiptist í þrjá jafn­væga hluta; tvo skriflega hluta og eitt raunhæft verkefni. Prófnefnd semur prófefnis­lýsingu fyrir hvern hluta og skal hún liggja fyrir á heimasíðu ráðuneytisins þegar próf eru auglýst samkvæmt 1. mgr. 2. gr.

Við ákvörðun skv. 1. mgr. skal prófnefnd leggja til grundvallar að efni hvers hluta krefjist þekkingar á eftirtöldum sviðum:

I. Reikningshald:

a) Grundvallarreglur reikningshalds

b) Lög og reikningsskilareglur

c) Ársreikningsgerð

II. Skattskil og upplýsingatækni:

a) Skattskil einstaklinga og lítilla fyrirtækja

b) Lög um tekjuskatt og virðisaukaskatt

c) Upplýsingakerfi og öryggisþættir

III. Raunhæft verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta leyst með tölvu:

a) Prófjöfnuður

b) Uppgjör, þ.m.t. virðisaukaskatts

c) Uppstilling ársreiknings

d) Útreikningur á tekjuskatti

4. gr.

Prófnefnd tekur hverju sinni ákvörðun um fjölda sjálfstæðra úrlausnarefna og tímalengd prófhluta.

Prófnefnd er heimilt að fela óháðum aðilum að semja prófverkefni, fara yfir og gefa einkunn fyrir prófúrlausn. Prófverkefni skulu samin af einstökum prófnefndarmönnum eða þeim, sem prófnefnd felur það starf. Verkefnin og vægi úrlausnarefna innan þeirra, skulu lögð fyrir prófnefnd til samþykktar.

Þá er prófnefnd heimilt að semja við óháðan aðila um framkvæmd prófa.

5. gr.

Prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum.

Við mat á úrlausnum skal gefin einkunn fyrir hvern prófhluta.

Einkunnir skulu gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Til þess að standast fulln­aðar­próf þarf prófmaður að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr öllum prófhlutum. Lágmarks­einkunn til að standast próf er 5,0 í hverjum hluta. Ef prófmaður nær ekki tilskil­inni lágmarkseinkunn er honum heimilt að þreyta próf að nýju þegar próf eru haldin skv. 2. gr.

Einkunnir skulu birtar prófmönnum innan 30 daga frá því að prófum lýkur.

Prófmaður á rétt á því að sjá prófúrlausn sína ef hann æskir þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Próftaka er heimilt að skjóta mati á úrlausn sinni til prófnefndar til endur­mats innan tveggja mánaða frá birtingu einkunnar. Prófnefnd getur skipað próf­dómara til að endurskoða úrlausn próftaka.

Til að standast próf til viðurkenningar bókara skal próftaki hafa lokið öllum prófhlutum með fullnægjandi árangri innan þriggja ára frá því hann lauk fyrsta prófinu.

Prófnefnd skal afhenda þeim prófmönnum sem standast próf skírteini því til staðfestingar.

6. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 473/2001, um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara, með síðari breytingum.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 20. júní 2012.
Steingrímur J. Sigfússon.

Helga Jónsdóttir

Reglugerðin á PDF formi


Reglugerðir sem falla brott:

447/2004 Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 473/2001, um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara.

296/2003 Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 473/2001, um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara.

473/2001 Reglugerð um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara.

Tekið af http://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/535-2012
Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur