Search
Close this search box.

Niðurstöður átaks gegn ólöglegri atvinnustarfssemi

28.11.2017

Ríkisskattstjóri, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á Suðurnesjum, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun voru sameiginlega með sérstakt átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi.

Á tímabilinu 18. september til 6. október 2017 var farið í 10 dagsheimsóknir og 5 kvöldheimsóknir og voru 327 fyrirtæki skoðuð og skráning 1.233 starfsmanna þeirra fyrirtækja. Flestar heimsóknir voru til fyrirtækja í byggingariðnaði eða 62%, heimsóknir á veitinga- og skemmtistaði voru 23%, þá voru 14% heimsókna á gististaði og í fyrirtæki í ferðaþjónustu og 1% heimsókna var til fyrirtækja í annarri starfsemi. Kannað var m.a. hvort atvinnurekendur stæðu skil á lögbundnum sköttum og gjöldum sem og hvort einhverjir væru með starfsmenn í vinnu án tilskilinna leyfa.

Niðurstöður átaksins voru þær að langflestum málum lauk án athugasemda eða 227 (69%), 21 máli lauk með leiðbeinandi tilmælum ríkisskattstjóra, 7 málum lauk með breytingum (þar af einu máli með stöðvun atvinnustarfsemi) og 72 mál eru í vinnslu hjá ríkisskattstjóra.

Auk þess voru 36 einstaklingar og 19 fyrirtæki kærð af lögreglu fyrir samtals 51 brot. Flest vegna brota á lögum um atvinnuleyfi.

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur