Search
Close this search box.

RSK – Dómur.Refsimál. gegn Hirti J. Hjartar og Ágústi Þórhallssyni . Hlutafélagalög. FS13 ehf.

Meðfylgjandi er dómur í máli ákæruvaldsins   á hendur Hirti J. Hjartar og Ágústi Þórhallssyni vegna brots gegn lögum um einkahlutafélög.

Sjá dóm.

Var ákært fyrir að þeir hefðu í lok árs 2007 vísvitandi sent Hlutafélagaskrá, Laugavegi 166, Reykjavík, ranga tilkynningu vegna einkahlutafélagsins FS13, varðandi breytingu á prókúru, stjórn og firmaritun og nýjar samþykktir. Í þessari tilkynningu kom fram ranglega að þær ráðstafanir sem þar voru tilkynntar hefðu verið ákveðnar á löglegum hluthafafundi einkahlutafélagsins, en ákærðu, sem skrifuðu undir fundargerð umrædds fundar var þá kunnugt um að svo var ekki. Vissu þeir að   þær ráðstafanir sem tilkynningin varðaði væru því ólöglegar.

Einnig var ákært fyrir  brot þeirra að því leyti sem þau beindust að þeim mikilvægu hagsmunum sem felast í réttri skráningu félaga hjá Hlutafélagaskrá svo að treysta megi upplýsingum sem skráin geymir.

 Loks var ákært fyrir  brot ákærðu gegn ríkum einkahagsmunum  hluthafa eins  í félaginu en aðgerðir ákærðu miðuðu að því að svipta hann hlut sínum í einkahlutafélaginu FS13.

Þótti  refsing beggja ákærðu hæfilega ákveðin 500.000 króna sekt til ríkissjóðs og  28 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur