Search
Close this search box.

Frumvarp til laga umÍslandsstofu. (markaðsgjald).

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um nýja ríkisstofnun, Íslandsstofu.
 Markmið frumvarpsins er að setja í lög ákvæði sem ætlað er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum, og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.

Sjá frumvarp

Gert er ráð fyrir að  Íslandsstofa starfi  á grunni Útflutningsráðs Íslands og fleiri stofnana..   Við gildistöku yfirtekur Íslandsstofa skv. frumvarpinu öll réttindi og skyldur Útflutningsráðs Íslands, eignir þess og skuldir. Áætlað er að  fjárheimildir færist frá Útflutningsráði og einnig mun Íslandsstofa fá til ráðstöfunar fyrir sín verkefni hluta af fjárheimildum til ferðamála er tilheyra iðnaðarráðuneytinu.
    Tekjur Íslandsstofu eru skv. frumvarpinu þessar (5.gr.):
   " 1.      Markaðsgjald, 0,05% sem lagt er á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald. Um álagningu og innheimtu markaðsgjalds fer eftir ákvæðum þeirra laga. Markaðsgjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn þess myndaðist.
    2.      Framlög á fjárlögum.
    3.      Þóknun fyrir veitta þjónustu.
    4.      Þjónustusamningar við stofnanir og samtök.
    5.      Sérstök framlög og aðrar tekjur. "…………………….

   Í ákvæði til bráðabirgða er að finna að ræða áframhald á núgildandi sólarlagsákvæði um markaðsgjald, sbr lög  um útflutningsaðstoð nr. 160/2002. Gjaldið fellur því  úr gildi 1. janúar 2013 verði annað ekki ákveðið með lögum fellur markaðsgjald , þó þannig að álagning gjaldsins fari fram árið 2013 vegna gjaldstofns ársins 2012.


   Gert er ráð fyrir að lögin  öðlist þegar gildi við birtingu þeirra og um leið  falla úr gildi lög um útflutningsaðstoð, nr. 160/2002, með síðari breytingum.

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur