Félag viðurkenndra bókara

Lög og reglur FVB

Lög félagsins

Lög félagsins

Nafn og tilgangur

1. gr

Nafn félagsins er: Félag viðurkenndra bókara, skammstafað Fvb.

2. gr

Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík.

3. gr

Félagsmenn eru þeir einir sem hafa hlotið viðurkenningu efnahags- og viðskiptaráðuneytis sem viðurkenndir bókarar og sem óska eftir aðild og fullnægja skilyrðum laga þessara.

4. gr

Tilgangur félagsins er:

• Að viðhalda og auka faglega þekkingu félagsmanna.
• Að vinna að samræmingu á vinnubrögðum félagsmanna m.a. með útgáfu og birtingu á heimasíðu félagsins um leiðbeinandi reglur um bókhald, reikningsskil og skattskil.
• Að vinna að bættri þjónustu félagsmanna við viðskiptavini sína, opinbera aðila og aðra er byggja á störfum þeirra.
• Að vinna að kynningu á starfssviði félagsmanna.
• Að vera í forsvari fyrir félagsmenn sem heild á opinberum vettvangi.
• Að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna.
• Að vinna að því að almennt aðhald sé með starfsemi og framkvæmd starfa félagsmanna.
• Að koma fram fyrir hönd viðurkenndra bókara gagnvart stjórnvöldum um þau málefni sem stétt þeirra varða.

5. gr

Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með reglulegum fundum félagsmanna, ályktunum og samþykktum, námskeiðahaldi fyrir félagsmenn og starfsmenn þeirra, eitt sér eða í samstarfi við aðra aðila, einnig með útgáfu fréttablaðs og annarra upplýsingarita og er birting á heimasíðu félagsins eða sending með tölvupósti jafngilt sem prentað, samantekt fræðslugagna sem varða störf félagsmanna, í samstarfi við hliðstæð félög innlend og erlend og með öðrum þeim hætti sem forsvarsmenn félagsins telja henta og við eiga hverju sinni.

 

Félagsmenn

6. gr

Félagsmenn geta þeir orðið sem hafa réttindi sem viðurkenndir bókarar samkvæmt ákvæðum laga þar um nú laga nr. 145/1994 grein 43 og óska skriflega eftir aðild að félaginu við stjórn þess. Félagsaðild manna fellur niður ef viðurkenningin fellur niður samkvæmt ákvæðum laga um viðurkennda bókara, þeir segja sig skriflega úr félaginu, þeir uppfylla ekki endurmenntunarkröfur sbr. 21. gr., eða eru í skuld við félagið í 2 ár eða lengri tíma. Ef félagsmaður gerist að mati stjórnar Fvb sannur að alvarlegu broti í starfi gagnvart opinberum aðilum eða gagnvart viðskiptavinum sínum getur stjórnin  vikið honum úr félaginu að undangenginni umfjöllum laga-, samskipta- og aganefndar sbr. 9. grein í samskipta- og agareglum félagsins.

7. gr

Samskipta- og agareglur Fvb eru sjálfstæður hluti laga félagsins.

8. gr

Ef einhver félagsmaður hefur unnið mikilvæg störf í þágu félagsins eða stéttarinnar í heild getur aðalfundur kjörið slíkan mann heiðursfélaga enda beri stjórn félagsins fram tillögu þar að lútandi.

9. gr

Félagsmönnum ber að upplýsa stjórn félagsins um breytingar sem verða á lögheimili þeirra og heimilisfangi starfsstöðvar sem og netfangi. Skal stjórnin halda nákvæma félagaskrá. Við hverja útstrikun úr skránni skal geta dagsins þegar hún er gerð.
 
Sending fundarboða og annarra tilkynninga er gild ef þær eru sendar á heimilisfang þeirrar starfsstöðvar sem hann hefur tilkynnt eða netfang.

10. gr

Um réttindi og skyldur félagsmanna fer eftir ákvæðum þessara laga.

 

Stjórn

11. gr

Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum og 2 félagsmönnum til vara.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn.

Ef fleiri en tveir fá atkvæði í formannskjöri en enginn þeirra helming greiddra atkvæða, skal kosið að nýju milli þeirra tveggja er flest atkvæði hlutu í fyrri kosningu.

Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára í senn, tveir ár hvert.

Varamenn skulu kosnir til tveggja ára, einn á hverju ári.

Óheimilt er að kjósa sama mann til formanns oftar en þrisvar í röð.

Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum, varaformaður, gjaldkeri, bókari og ritari.

Stjórnarmenn fá frí félagsgjöld og frítt á námskeið á aðalfundardegi á meðan þeir eru í stjórn. Að auki fá stjórnarmenn endurmenntunareiningar fyrir setu sína í stjórninni sem skulu reiknaðir sem hér segir:

Formaður   

45 einingar

Aðrir stjórnarmenn  

30 einingar hver

Kjósa skal einn skoðunarmann reikninga og annan til vara til eins árs í senn og fá þeir 7,5 endurmenntunareiningar í þóknun fyrir störf sín.

Skemmtinefnd Fvb er skipuð 3 félagsmönnum. Skemmtinefndin er kosin til eins árs í senn og fá nefndarmenn 7,5 endurmenntunareiningar í þóknun fyrir störf sín.

12. gr

Stjórn félgagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin skal í hvívetna gæta hagsmuna félagsins í störfum sínum.

Stjórnin skal setja verklagsreglur fyrir stjórn og nefndir.

Stjórnin skal hafa heimild til að skipa  nefndir  til lengri eða skemmri tíma.
 

Fundir og fundarseta

13. gr

Formaður kveður stjórnina til funda þegar hann telur þess þörf eða einn meðstjórnenda óskar þess.

14. gr

Til félagsfunda skal stjórnin boða með bréfi eða tölvupósti til hvers og einstaks félagsmanns með minnst 7 daga fyrirvara. Í fundarboði skal stuttlega geta þeirra mála er fjallað skal um á fundinum.

Fimmti hluti félagsmanna hið fæsta hefur rétt til að krefjast félagsfundar. Skal það gert skriflega og greina frá fundarefni. Skal stjórninni skylt að boða til fundarins með venjulegum hætti sem haldinn skal innan 21 dags frá því að henni barst krafa þar um og geta skal fundarefnis í fundarboði.

15. gr

Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í nóvember ár hvert. Skal boðað til hans bréflega eða með tölvupósti með 2 vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Atkvæðisrétt hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald yfirstandandi árs og eru skuldlausir við félagið.

Aðalfundi stýrir fundarstjóri sem kosinn er til þess af fundarmönnum og tilnefnir hann fundaritara. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafi verið til fundarins boðað og lýsir því síðan hvort svo sé.

Fundarstjóri skal stjórna fundinum samkvæmt lögum félagsins og almennum reglum um fundarsköp.

Dagskrá fundarins skal vera:

1. Kosning fundarstjóra
2. Kosning fundarritara og  tveggja atkvæðateljara
3. Skýrsla stjórnar og umræður 
4. Skýrslur nefnda og umræður 
5. Lagður fram ársreikningur til samþykktar, umræður 
6. Tillögur til breytinga á lögum félagsins ef um þær er að ræða
7. Kosning formanns
8. Kosning meðstjórnenda
9. Kosning varamanna í stjórn
10. Kosning skoðunarmanns reikninga og annars til vara
11. Kosning nefnda
      a. Fræðslunefnd og varamenn
      b. Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) og varamenn
      c. Skemmtinefnd
12. Tillaga stjórnar um félagsgjald félagsmanna og inntökugjald næsta reikningsár
13. Lögð fram fjárhagsáætlun
14. Önnur mál

Atkvæðagreiðslur fara fram eftir því sem fundarstjóri kveður nánar á um. Þó skal skrifleg atkvæðagreiðsla fara fram ef einhver fundarmanna krefst þess.

16. gr

Á fundum félagsins ræður meirihluti atkvæða úrslitum mála nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.

17. gr

Haldin skal gerðarbók þar sem í skal rita stutta skýrslu um það sem gerist á félagsfundum, einkum allar fundarsamþykktir. Þessi fundarskýrsla skal vera full sönnun þess, er farið hefur fram á fundinum.

Í gerðarbók skal einnig skrá skýrslu um stjórnarfundi með sama hætti og undirrita hana allir viðstaddir stjórnarmenn. Gerðabók getur einnig verið í tölvutæku formi og er staðfesting á fundargerð síðasta fundar getið í upphafi næsta fundar.Fundargerð aðalfundar staðfestist með tilkynningu til félagsmanna eftir að hún hefur verið birt og athugasemdir bókaðar.

 

Fjármál

18. gr

Félag viðurkenndra bókara er ekki rekið í hagnaðarskyni, heldur skal nota allar eignir og tekjur þess til að vinna að markmiði þess. Fjárhagur félagsins er óháður fjárhag einstakra félagsmanna. Enginn félagsmaður á hlutdeild í eignum félagsins, né er nokkur þeirra ábyrgur fyrir greiðslu skuldbindinga þess.

Ef til skattlagningar kemur, er félagið sjálfstæður skattaðili.

19. gr

Reikningsár félagsins er frá 1. október til 30. september.

Á aðalfundi skal stjórn leggja fyrir fjárhagsáætlun næsta árs til kynningar.

20. gr

Aðalfundur ákveður félagsgjald félagsmanna og inntökugjald fyrir hvert ár fyrirfram. Skal stjórnin leggja fram tillögur þar að lútandi.

Stjórn félagsins er heimilt að fella niður félagsgjald, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.
Sé félagsmaður í skuld við félagið í 2 ár eða lengur er stjórninni heimilt að fella hann af félagaskrá sbr. 6.gr. Gjalddagi félagsgjalda er 1. mars og eindagi 30. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Á þetta einnig við ef um aðar skuldir félagsmanna er að ræða. Félagsréttindi öðlast hann á ný, er hann hefur greitt skuld sína við félagið.

Hafi félagmaður hætt störfum sökum aldurs eða veikinda getur hann eftir sem áður haldið félagsaðild sinni án þess að greiða félagsgjald og þarf ekki að sinna endurmenntunarkröfum félagsins sbr. 21. grein.

Félagsmaður sem fer úr félaginu hvort heldur vegna úrsagnar eða af öðrum ástæðum á hvorki endurkröfurétt til greiddra félagsgjalda né inntökugjalda.
Hafi vinnuveitandi félagsmanns samþykkt að greiða félagsgjöld og/eða námskeiðsgjöld hans er félagsmaður eftir sem áður ábyrgur fyrir greiðslu á þeim.

 

Endurmenntun félagsmanna

21. gr

Félagsmaður skal á hverju 3ja ára tímabili sækja endumenntun sem félagið viðurkennir, sem svarar til 45 eininga, sbr. 2. mgr. Heimilt er að víkja frá þessu ef sérstaklega stendur á s.s veikindi.

Einingar skulu reiknaðar sem hér segir:

Fundir og námskeið á vegum Fvb eða önnur námskeið sem félagið viðurkennir

   Hálfdags námskeið eða ráðstefna ................... 7,5 einingar
   Heilsdags námskeið eða ráðstefna .................. 15,0 einingar
   Önnur fagnámskeið og fræðslufundir ............... 1,5 eining pr klst

22. gr

Félagsmaður skal skrá þátttöku sína í námskeiðum eða fyrirlestrum sem eru haldin utan félagsins á eyðublöð sem Fvb útbýr til notkunar við framkvæmd lagagreina þessara og ber að skila því ásamt staðfestingu á þátttöku sinni til Fvb fyrir 31. janúar ár hvert.
Félagið heldur skrá yfir einingafjölda hvers félagsmanns og tilkynnir viðkomandi félagsmanni ef hann uppfyllir ekki ákvæði 21.gr. um endurmenntun. Félagið sjálft ber ekki kostnað vegna endurmenntunar félagsmanna.

23. gr

Óski félagsmaður eftir áframhaldandi veru í félaginu skal hann sýna fram á að hann hafi sinnt endurmenntun sbr. 21. og 22. gr.  Séu ákvæði 21. og 22. gr. ekki uppfyllt fellur hann af félagaskrá.


24. gr

Sérstök nefnd skal hafa umsjón með endurmenntun félagsins m.a. með námskeiðum og ráðstefnum fyrir félagsmenn samkvæmt verklagsreglum sem stjórnin setur. Skal einn stjórnarmaður vera tengiliður stjórnar og fræðslunefndar.
Fimm nefndarmenn skulu vera í nefndinni, þar af einn formaður. Nefndarmaður skal sitja í a.m.k. 2 ár og kosið um 2 annað árið og 3 hitt.

Tveir varamenn eru í fræðslunefnd og annar þeirra kosinn á hverju ári.

Fræðslunefnd félagsins þarf ekki að greiða þátttökugjöld á námskeiðum, enda er það starf þeirra að vera á þeim námskeiðum sem þeir eru með.
Að auki fá nefndarmenn 15 endurmenntunareiningar hver fyrir setu sína í nefndinni.

 

Breytingar á lögum

25. gr

Tillaga um breytingar á lögum félagsins eða um félagaslit skal ítarlega getið í fundarboði og skulu þær bornar fram á aðalfundi. Öðlast þær tillögur aðeins gildi ef 2/3 hluta greiddra atkvæða eru með þeim.

 

Samþykkt á aðalfundi 6.nóvember 2009.


Samskipta- og agareglur

Samskipta- og agareglur

Almenn ákvæði

1. gr

1.1
Eftirfarandi samskipta- og agareglur, sem eru hluti af lögum Félags viðurkenndra bókara (Fvb) gilda fyrir félagsmenn Fvb og fyrirtæki þeirra. Markmið reglnanna eru sem hér segir:

a) Að stuðla að heiðarlegum og hreinskiptum samskiptum félagsmanna Fvb.

b) Að stuðla að því að félagsmenn Fvb vinni störf sín af fagmennsku, kostgæfni og samviskusemi.

c) Að stuðla að góðu orðspori félagsmanna Fvb.

2. gr

2.1
Sérhver félagsmaður Fvb skal vinna öll sín verk í samræmi við þessar samskipta- og agareglur og þær almennu starfsreglur sem hæfir og samviskusamir félagsmenn Fvb fara eftir á hverjum tíma.

2.2
Það er skylda hvers félagsmanns Fvb að leitast við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til starfa félagsmanna Fvb á hverjum tíma.

a) Félagsmaður Fvb skal í hvívetna halda lög og reglur sem að starfi hans og framkvæmd þess lúta.

b) Félagsmaður Fvb skal vinna verk sín í samræmi við góða bókhalds- skoðunar- og reikningsskila­venju eftir því sem við á.

c) Félagsmaður Fvb skal vera hreinskilinn og heiðarlegur í starfi sínu og gæta réttsýni og hlutlægni í umsögnum sínum.

d) Félagsmaður Fvb skal gæta þagmælsku um það er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara og láta það ekki þriðja aðila í té án sérstaks leyfis nema honum sé það skylt lögum samkvæmt.

e) Félagsmaður Fvb skal vinna starf sitt í samræmi við þær reglur og staðla sem stjórnvöld og/eða félagið setja starfinu hverju sinni.

f) Félagsmanni Fvb ber að viðhalda faglegri hæfni sinni og taka aðeins að sér þau störf sem hann eða fyrirtæki hans getur búist við að geta leyst á faglegan hátt.

g) Félagsmaður Fvb skal gæta heiðurs félagsins og forðast að gera nokkuð það sem getur skaðað álit annara á því.


Samskipti innan félagsins

3. gr

3.1
Óheimilt skal félagsmanni Fvb að eiga frumkvæði að því að gengið sé á hlut annars félagsmanns.

4. gr

4.1
Félagsmaður Fvb má einungis gagnrýna störf annars félagsmanns Fvb á málefnalegum grundvelli og skal forðast að valda honum álitsspjöllum umfram það sem málefnið gefur ástæðu til.


5. gr


5.1
Sé félagsmaður Fvb beðinn um að taka að sér sérstakt verkefni hjá einstaklingi, félagi eða stofnun sem nýtur þjónustu annars félagsmanns Fvb sem honum er kunnugt um ber honum áður en verkið er hafið að fullvissa sig um að þeim félagsmanni Fvb sé kunnugt um að honum hafi verið falið verkefnið.

5.2
Sé til þess mælst við félagamann Fvb að hann geri tilboð í verk sem til þess tíma hefur verið unnið af öðrum félagsmanna Fvb skulu útreikningar tilboðsins unnir á viðurkenndan og eðlilegan hátt.


Tengsl við viðskiptavini

6. gr

6.1
Hafi félagsmaður Fvb að fyrra bragði samband við einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir sem þegar njóta þjónustu annarra félagsmanna Fvb í því skyni að stofna til viðskiptasambanda skal hann sýna háttvísi í hvívetna og veita réttar og faglegar upplýsingar. Sama á við gagnvart dánarbúi látins félagsmanns Fvb, þrotabúi gjaldþrota félagsmanns Fvb eða í hliðstæðum tilvikum.


Almannatengsl

7. gr

7.1
Félagsmenn Fvb og fyrirtæki þeirra skulu leitast við að láta starfsheiti sitt koma fram í auglýsingum, á skiltum og bréfsefni sínu.


Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA)

8. gr

8.1
Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) skal kosin á aðalfundi félagsins og skipuð 3 mönnum og 2 til vara. Nefndin skiptir með sér verkum.
Formaður Fvb er eftirlitsmaður nefndarinnar. Nefndarmenn LSA fá 15 endurmenntunareiningar hver fyrir setu sína í nefndinni.
LSA skilar árlegri skýrslu til aðalfundar um málafjölda og afgreiðslu mála.

8.2
Formaður LSA kallar hana saman og ákveður fundarstað og tíma. Vinna nefndarinnar getur farið fram eftir þeim samskiptaleiðum sem hentugastar þykja hverju sinni.


8.3
Umræður í LSA eru frjálsar og ekki skal skrá fundargerðir.


Kæruákvæði

9. gr

9.1
Kærur vegna brota á reglum þessum getur sérhver félagsmaður í Fvb og stjórn Fvb lagt fram.

9.2
Kærur skulu sendar LSA og viðkomandi félagsmanni með sannanlegum hætti og skulu teknar fyrir svo fljótt sem verða má.

9.3
Á nefndarfundum skulu nefndarmenn víkja af fundi um mál sem snerta þá sjálfa, maka þeirra, ættingja, þá sem þeir starfa með í félagi eða reka starfsemi með undir sameiginlegu nafni, starfsmenn þeirra, vinnuveitendur, yfirmenn eða nokkra aðra sem störf þeirra hafa bein áhrif á og eiga beinna hagsmuna að gæta.

9.4
LSA skal ekki álykta um aðgerðir gegn félagsmanni Fvb fyrr en hann hefur verið kallaður fyrir nefndina með ábyrgðarbréfi og honum gefinn kostur á að tjá sig um málið eða koma fram andmælum innan 3 vikna frá dagsetningu bréfsins.

9.5
LSA skal fyrst reyna sættir með aðilum. Takist það ekki skal nefndin úrskurða um kæruatriði. Niðurstaða nefndarinnar getur falist í:
a) skriflegri viðvörun
b) útstrikun af lista yfir félagsmenn Fvb sbr. 6. grein laga Fvb

Sætti annarhvor aðilinn sig ekki við niðurstöðu getur hann vísað ágreiningi til stjórnar Fvb innan 3 vikna frá dagsetningu úrskurðar. Stjórnin getur kallað eftir frekari gögnum og tekur málið síðan til úrskurðar og er sú niðurstaða endanleg.


Breytingar

10. gr

10.1
Breytingar á samskipta- og agareglum þessum skal gera á sama hátt og mælt er fyrir um breytingar á lögum Fvb.

 

Samþykkt á aðalfundi 6.nóvember 2009.


Reglugerð 473/2001

Reglugerð 473/2001 um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara

1. gr.

Prófnefnd þriggja manna sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn, annast námskeið og próf til viðkenningar bókara. Prófnefnd er heimilt að fela öðrum að annast námskeið og próf samkvæmt reglugerð þessari.


2. gr.

Námskeið og próf skulu að jafnaði haldin einu sinni ár hvert og skal auglýsa þau með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara.


3. gr.

Prófnefnd tekur ákvörðun um prófsefni það sem prófað er úr. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta, I hluta, reikningshald, II. hluta, skattskil, og III. hluta, upplýsingamiðlun og upplýsingakerfi. Miða skal við að kennsla í hverjum hluta verði 30 klst. Að loknum námskeiðum skal halda próf úr öllum hlutunum. Kennslugreinar eru þessar og skiptast þannig á milli námskeiðshluta:

I. hluti
Grundvallarreglur reikningsskila.
Lög og reikningsskilavenjur.
Reikningsskilagerð.

II. hluti
Lög og reglur.
Samskipti við skattyfirvöld.
Úrskurðir, dómar og álit.

III. hluti
Rafræn skattskil einstaklinga og lögaðila.
Öryggismál í netkerfum.
Áhrif upplýsingatækninnar á reikningshaldskerfi.
Reikningshaldslegt innra eftirlit í viðskiptaferlum.


4. gr.

Próf skulu að jafnaði vera skrifleg. Við skrifleg og raunhæf verkefni skal prófmaður hafa a.m.k. 2 klst. til þess að vinna að úrlausn sinni.


5. gr.

Umsjónarmaður námskeiðshluta getur ákveðið að leggja raunhæf verkefni sem tengjast námskeiðshluta fyrir þátttakendur í námskeiðinu. Er honum heimilt að ákveða að vægi þeirra í heildareinkunn hverrar námsgreinar sé allt að 50%. Umsjónarmaður skal gera grein fyrir vægi raunhæfra verkefna í hverri námsgrein í upphafi hvers námskeiðs.


6. gr.

Skriflegar prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum.

Við mat á úrlausnum skal gefin einkunn fyrir hverja prófgrein.

Einkunnir skulu gefnar í heilum eða heilum og hálfum tölum frá 0-10. Til þess að standast fullnaðarpróf þarf prófmaður að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr öllum prófgreinum. Lágmarkseinkunn til að standast próf er 5,0 í hverri prófgrein. Ef prófmaður nær ekki tilskilinni lágmarkseinkunn er honum heimilt að þreyta próf að nýju þegar próf eru haldin skv. 2. gr. Þegar prófmaður skráir sig í endurtekningarpróf skal hann greiða prófgjald.

Einkunnir skulu birtar prófmönnum innan 45 daga frá því að prófum lýkur.

Prófmaður á rétt á því að skoða prófúrlausn sína og eftir atvikum skjóta mati leiðbeinanda til prófdómara innan fimmtán daga frá birtingu einkunna. Mat prófdómara á úrlausn er endanlegt.

Prófnefnd skal afhenda þeim prófmönnum sem standast próf skírteini því til staðfestingar.


7. gr.

Til að standa straum af kostnaði við námskeið og próf samkvæmt reglugerð þessari skulu þátttakendur greiða gjald um leið og skráning fer fram. Miða skal við að tekjur af gjaldinu standi undir kostnaði við námskeið og próf. Fjárhæð gjaldsins skal koma fram í auglýsingu, sbr. 2. gr.

Gjald skv. 1. mgr. er endurkræft ef af námskeiði verður ekki eða ef sá er skráð hefur sig á námskeið, fellur frá þátttöku 30 dögum áður en námskeiðið hefst eða sérstakar ástæður mæla með endurgreiðslu.


8. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 668/1999, um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara.

 

Fjármálaráðuneytinu, 14. júní 2001.


Geir H. Haarde.

Baldur Guðlaugsson

 

Reglugerðin á netinu:


Breytingarreglurgerðir:

 


 

Úr myndasafni


Á döfinni

15.sep - Eindagi staðgreiðslu
05.okt - Eindagi VSK
29.okt - Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lýkur
síðasta mánuð September 2010 næsta mánuð
M Þ M F F L S
week 35 1 2 3 4 5
week 36 6 7 8 9 10 11 12
week 37 13 14 15 16 17 18 19
week 38 20 21 22 23 24 25 26
week 39 27 28 29 30

Heimsóknir

Í dag: 75
Í gær: 22
Samtals síðan 15/2/07: 63477
Þú ert hér  : Heima Félagið Lög og reglur FVB

Veftré

icontexto-webdev-site-map-048x048Smelltu hér
fyrir veftré

Launakannanir FVB

icontexto-webdev-money-048x048Smelltu hér til að
sjá niðurstöður

Gerast félagsmaður

icontexto-webdev-add-048x048Smelltu hér til að
gerast félagsmaður

Félagaskrá FVB

icontexto-webdev-user-048x048Smelltu hér til
að sjá félagaskrá FVB

Tenglar

icontexto-webdev-config-048x048Smelltu hér
fyrir tenglasafn

Faglegt efni

icontexto-webdev-file-048x048Smelltu hér
fyrir faglegt efni