|
Bókara vanan Navision vantar í hlutastarf! |
|
|
|
|
Mánudagur, 06. september 2010 14:12 |
|
Bókara vanan Navision vantar í hlutastarf!
Lítið innflutningsfyrirtæki leitar að góðum bókara í hlutastarf 9.00 – 14.00.
Verður að vera vanur/vön Navision : fjárhag, birgða-, innkaupum, verk- og launabókhaldi.
Viðkomandi verður að vera skipulagður, talnaglöggur og fær um að vinna
sjálfstætt og í hóp. Viðkomandi verður að geta byrjað sem allra fyrst.
Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið :
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Fyrir 9.september 2010 |
|
Gönguferð 1. september n.k. |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 13:10 |
|
Kæru félagar. Nú eru margir komnir til vinnu eða eru að klára sín sumarfrí og nú höldum við áfram að fara gönguferðir fyrsta miðvikudag í mánuði í vetur. Við munum nýta okkur gögnuleiðir innan höfuðborgarsvæðisins þar til vora fer á ný. En fyrst verður haldið á Esjuna eða miðvikudaginn 1. september nk. og lagt af stað kl. 17,00 ath. breyttan tíma. Þeir sem ekki treysta sér til að ganga alla leið á fjallið geta komið með hópnum og farið styttra. Eftir göngu er tilvalið að koma við á Esjustofu, þar eru hollir réttir í boði í mat og drykk, sjá heimasíðuna www.esjustofa.is.
Hlökkum til að sjá ykkur vonum að fá bjart og gott veður og takið alla fjölskylduna og/eða vini með. Skemmtinefndin
|
|
Sunnudagur, 20. júní 2010 01:03 |
|
Miðvikudaginn 2. júní sl. var farin frábær gönguferð á Helgafelli í guðdómlegu veðri og var 16 manna hópurinn alsæll með túrinn. Næst verður gengið í kringum Vífilstaðavatn miðvikudaginn 7. júlí og verður lagt af stað frá bílastæðinu kl. 18:00.
Skemmtinefndin |
|
Fimmtudagur, 06. maí 2010 14:11 |
|
Gönguferðin á Úlfarsfellið í gær heppnaðist afar vel og var þátttaka mjög góð, þrátt fyrir þoku og lítið útsýni. Mikill áhugi er meðal hópsins og hefur verið ákveðið að framvegis verði gönguferð á vegum skemmtinefndar FVB fyrsta miðvikudag í mánuði.
Næst verður haldið á Helgafellið við Kaldársel fyrir ofan Hafnarfjörð, 2. júní n.k. og lagt af stað kl. 18,00. Þaðan er mjög fallegt útsýni og þeir sem ekki treysta sér til að ganga á fjallið geta komið með hópnum að rótum Helgafellsins og gengið í kring um Valahnjúka eða Helgafellið sjálft og eru þar merktar gögnuleiðir. Hlökkum til að sjá ykkur vonum að fá bjart og gott veður og takið alla fjölskylduna eða vini með.
Skemmtinefndin
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 110 |