Félag viðurkenndra bókara

Fréttir
Örnámskeið seinnipart 5. okt og 13. okt
Félagsfréttir
Félagsmenn takið frá þessar dagsetningar 5.okt. og 13 okt. Örnámskeið í VR húsinu. Málstofur: Þriðjudagurinn 5. okt. Kl. 16:45 – 19:00. Laun og launamál. Miðvikudagurinn 13. okt. Kl. 16:45 – 19:00. Efni á netinu sem við getum nýtt okkur betur !
 
Bókara vanan Navision vantar í hlutastarf!
Félagsfréttir
Bókara vanan Navision vantar í hlutastarf! Lítið innflutningsfyrirtæki leitar að góðum bókara í hlutastarf 9.00 – 14.00. Verður að vera vanur/vön Navision : fjárhag, birgða-, innkaupum, verk- og launabókhaldi. Viðkomandi verður að vera skipulagður, talnaglöggur og fær um að vinna sjálfstætt og í hóp. Viðkomandi verður að geta byrjað sem allra fyrst. Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið : Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Fyrir 9.september 2010
 
Gönguferð 1. september n.k.
Félagsfréttir

Kæru félagar.
Nú eru margir komnir til vinnu eða eru að klára sín sumarfrí og nú höldum við áfram að fara gönguferðir fyrsta miðvikudag í mánuði í vetur. Við munum nýta okkur gögnuleiðir innan höfuðborgarsvæðisins þar til vora fer á ný.
En fyrst verður haldið á Esjuna eða miðvikudaginn 1. september nk. og lagt af stað kl. 17,00 ath. breyttan tíma. Þeir sem ekki treysta sér til að ganga alla leið á fjallið geta komið með hópnum og farið styttra. Eftir göngu er tilvalið að koma við á Esjustofu, þar eru hollir réttir í boði í mat og drykk, sjá heimasíðuna www.esjustofa.is.

Hlökkum til að sjá ykkur vonum að fá bjart og gott veður og takið alla fjölskylduna og/eða vini með.
Skemmtinefndin


 
Gönguferð á Helgafelli
Félagsfréttir

Gönguferð á Helgafell Miðvikudaginn 2. júní sl. var farin frábær gönguferð á Helgafelli í guðdómlegu veðri og var 16 manna hópurinn alsæll með túrinn. Næst verður gengið í kringum Vífilstaðavatn miðvikudaginn 7. júlí og verður lagt af stað frá bílastæðinu kl. 18:00.

Skemmtinefndin

 
Frumvarp til laga
RSK fréttir

Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald,
ásamt síðari breytingum, og um ráðstöfun gjaldsins árið 2010.

(Lagt fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi 2009–2010.)

Sjá frumvarp

 
Frumvarp til laga um breyting á lögum um tekjuskatt (skattaleg meðferð á eftirgjöf skulda) .
RSK fréttir

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á tekjuskattslögum. Lagt er  ákvæði til bráðabirgða um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda hjá móttakanda eftirgjafarinnar.Skal það ná til áranna 2009, 2010 og 2011.
Með vissum skilyrðum geta skv. frumvarpinu  rekstraraðilar talið til tekna  50% af eftirgjöf skulda vegna rekstrar- og greiðsluerfiðleika upp að samtals 50 m.kr., og 25% af eftirgjöf umfram samtals 50 m.kr.
Gert er ráð fyrir að ekki teljist til tekna eftirgjöf að 10 m.kr. hjá einstaklingi og  20 m.kr. hjá hjónum eða samsköttuðum vegna greiðsluerfiðleika.Ef eftirgjöf er hærri má falla frá tekjufærslu sem nemur 50% af eftirgjöfinni að hámarki samtals 20 m.kr. hjá einstaklingi og samtals 40 m.kr. hjá hjónum eða samsköttuðum, og 25% af eftirgjöf umfram samtals 20 m.kr. hjá einstaklingi og samtals 40 m.kr. hjá hjónum eða samsköttuðum.
Loks er ríkisskattstjóra heimilt að lækka tekjuskattsstofn manns sem myndast hefur vegna eftirgjafarinnar ef til dæmis viðkomandi á litlar eignir.

Sjá frumvarp 


 
Nefnadarálit
RSK fréttir

Nefndarálit um frv. til l. um breyt. á l. nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum (ívilnun vegna endurbóta og viðhalds).


Frá efnahags- og skattanefnd

Sjá álit

 
Reglur um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum.
RSK fréttir

Nr. 484 18. maí 2010

REGLUR

um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um meistaranám í skattarétti og reikningsskilum við Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af viðskiptafræðideild annars vegar og lagadeild hins vegar.

Reglur um meistaranámið eru sérreglur gagnvart ákvæðum 69. gr. reglna nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands, og reglum einstakra deilda um framhaldsnám. Reglur háskólans og deilda gilda þó eftir því sem við á ef þessar reglur hafa ekki að geyma ákvæði um einstök tilvik. Fyrirvarar deilda í reglum og kennsluskrá um fjárveitingar, fáanlegt kennaralið og slík atriði gilda gagnvart þeim nemendum sem skráðir eru í námið.

2. gr.

Markmið.

Meistaranám í skattarétti og reikningsskilum miðar að því að veita fræðilega sérmenntun á sviðum er snerta skattamál og reikningsskil.

Með náminu er komið til móts við þarfir samfélagsins fyrir rannsóknir, þjónustu og stefnumótun sem tengjast skattamálum og reikningsskilum.

3. gr.

Um námið.

Námið er skipulagt og stundað í umboði tveggja háskóladeilda, viðskiptafræðideildar og laga-deildar. Deildirnar eru bundnar af reglum þessum, svo og af sérstöku samkomulagi þeirra um námið, sbr. 2. mgr.

Samstarfsdeildirnar hafa gert með sér samkomulag um skipan þverfaglegs meistaranáms í skattarétti og reikningsskilum við Háskóla Íslands. Í því er meðal annars kveðið á um hvaða deild hefur umsjón með náminu, fjármögnun þess og önnur atriði sem lúta að fjárhagslegum samskiptum.

Hvor samstarfsdeild hefur umsjón með náminu á víxl til þriggja ára í senn og kallast þá umsjónardeild skv. reglum þessum. Umsjónardeild annast umsýslu námsins, þ.e. upplýsingagjöf til nemenda, tilkynningar, móttöku umsókna og skráningareyðublaða, frágang í kennsluskrá og slík atriði. Nánar er kveðið á um í samkomulagi deilda hvert hlutverk umsjónardeildar er.

Meistaranám í skattarétti og reikningsskilum skal vistast hjá umsjónardeild hverju sinni. Nemandi er skráður og brautskráist frá þeirri deild sem er umsjónardeild við innritun hans og gefur sú deild út prófskírteini og kemur þar fram að námið sé í samvinnu beggja deilda.

4. gr.

Stjórn námsins.

Stjórn félagsvísindasviðs skipar tveggja manna námsstjórn meistaranáms í skattarétti og reikningsskilum til þriggja ára í senn. Hvor deild tilnefnir einn fulltrúa af sinni hálfu í námsstjórn. Með tilnefningu í námsstjórn öðlast viðkomandi háskóladeild aðild að náminu með þeim réttindum og skyldum sem henni fylgja.

Námsstjórn ber faglega ábyrgð á náminu í umboði þeirra deilda sem aðild eiga að því.

Námsstjórn fer með öll sameiginleg málefni námsins fyrir hönd viðkomandi deilda, skipuleggur það og hefur yfirumsjón með því. Hún annast samskipti við Miðstöð framhaldsnáms við Háskóla Íslands, sbr. 66. gr. reglna nr. 569/2009.

Námsstjórnin tryggir gæði námsins m.a. með því að skipuleggja námið, yfirfara og samþykkja umsóknir, samþykkja námsáætlanir og breytingar á þeim, skipa menn í meistaranámsnefndir og tilnefna prófdómara fyrir meistarapróf.

Forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands sker úr ágreiningi sem upp kann að koma í náms-stjórn eða samskiptum deildanna um túlkun samkomulagsins eða framkvæmd námsins. Nr. 484 18. maí 2010

5. gr.

Umsóknarfrestur.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl ár hvert fyrir innritun á haustmisseri. Námsstjórnin getur veitt undanþágu frá þessari tímasetningu ef sérstök ástæða er fyrir hendi. Afgreiðslu umsókna skal vera lokið og þeim svarað fyrir 25. maí sama ár.

6. gr.

Meðferð umsókna.

Umsóknum um meistaranám í skattarétti og reikningskilum skal skilað á rafrænu umsóknar-eyðublaði á vef HÍ.

Námsstjórn fjallar um og afgreiðir umsóknir og ber að líta til gæða þeirra og inntökuskilyrða. Umsókn skal fylgja námsáætlun.

Ferli umsókna um meistaranám í skattarétti og reikningsskilum er eftirfarandi:

a) Nemandi sækir um inngöngu í meistaranám á rafrænu umsóknareyðublaði sem aðgengilegt er á vef HÍ. Nemendaskrá veitir umsjónardeild aðgang að umsókninni og umsjónardeild sendir hana til námsstjórnar.

b) Námsstjórnin fjallar um umsóknina og afgreiðir hana og sendir umsókn til umsjónardeildar. Umsjónardeild afgreiðir hana að uppfylltum skilyrðum með beiðni um að nemandinn hljóti skrásetningu til námsins. Umsjónardeild verður við slíkri beiðni nema veigamikil rök hamli skrásetningu. Að fenginni staðfestingu á skrásetningu afgreiðir umsjónardeildin umsóknina og sendir tilkynningu þar að lútandi til nemendaskrár.

c) Afgreiðslu umsóknar skal að jafnaði vera lokið og henni svarað skriflega innan sex vikna frá því að umsóknarfresti lýkur. Umsókn er synjað ef hún uppfyllir ekki gæðakröfur eða önnur lagaskilyrði. Skjóta má synjun til viðkomandi umsjónardeildar til endanlegrar afgreiðslu.

d) Nemandi sem námsstjórnin hefur samþykkt í meistaranám skal snúa sér til nemendaskrár og ganga frá skráningu sinni í námið og greiðslu skrásetningargjalds. Skráning og greiðsla skráningargjalds vegna náms á haustmisseri skal fara fram í síðasta lagi 10. júlí (eindagi gjaldsins).

7. gr.

Inntökuskilyrði.

Til að innritast í meistaranám í skattarétti og reikningsskilum þarf umsækjandi að hafa lokið BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands eða BS-prófi eða BA-prófi frá viðskiptafræðideild háskólans eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi í sambærilegum greinum.

8. gr.

Einingafjöldi og tímalengd náms.

Námslínur í skattarétti og reikningsskilum eru tvær. Annars vegar 90 ECTS eininga nám sem telst grunnur námsins. Hins vegar 120 ECTS eininga nám óski nemandi eftir því samkvæmt sérstakri umsókn.

Nám í skattarétti og reikningsskilum er 90 ECTS einingar. Miðað skal við að lengd námsins sé tvö ár (fjögur misseri). Nemandi skal hafa lokið náminu eigi síðar en á því almanaksári þegar fjögur ár eru liðin frá innritun hans í námið. Námsnefnd getur veitt undanþágu frá þessu ákvæði um tíma-mörk ef veikindi eða aðrar vítaleysisástæður koma til. Við brautskráningu skal nemandi sýna fram á að hann hafi verið skráður og greitt skráningargjald allan námstímann, eða samkvæmt nánari reglum sem HÍ kann að setja.

9. gr.

Framvinda og samsetning náms.

Námið skal fela í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og þátttöku í námskeiðum á framhaldsnámsstigi. Nr. 484 18. maí 2010

Gerð er grein fyrir einstökum efnisþáttum meistaranáms í skattarétti og reikningsskilum í sér-stöku fylgiskjali sem fylgir samkomulagi viðkomandi deilda um skipan þverfaglegs meistaranáms.

Nemandi skal velja sér efni til lokaritgerðar (rannsóknarverkefnis) í síðasta lagi 8 mánuðum fyrir áætlaða brautskráningu, þ.e. fyrir 15. júní vegna útskriftar í febrúar árið eftir og fyrir 15. október vegna útskriftar í júní árið eftir. Þá skal einnig liggja fyrir lýsing á því verkefni sem rannsaka skal og áætlun um framkvæmd þess.

Val ritgerðarefnis eða verkefnis skal háð samþykki verðandi umsjónarkennara/leiðbeinanda nemanda. Nemandi skal skila sérstöku eyðublaði til skrifstofu umsjónardeildar um val á efni og umsjónarkennara/leiðbeinanda, undirritað af þeim og nemanda, innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í 3. mgr.

Námsstjórn samþykkir lýsinguna og áætlunina. Lokaritgerð skal samsvara 18 ECTS einingum ef um 90 eininga nám er að ræða en 30 ECTS einingum ef um 120 eininga nám er að ræða. Æskilegt er að ritgerðin taki mið af forsendum þverfaglegs náms.

10. gr.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi.

Áður en nemandi hefur samningu lokaritgerðar (rannsóknarverkefnis) skal hann hafa valið sér umsjónarkennara sem hann ráðfærir sig við um lokaritgerð (rannsóknarverkefni), lýsingu hennar og áætlun um framkvæmd. Umsjónarkennari ásamt nemanda leggur fram rannsóknaráætlun sem stjórn námsins samþykkir. Umsjónarkennara er heimilt að hafa utanaðkomandi leiðbeinanda enda uppfylli hann kröfur þessara reglna og viðkomandi deildar. Umsjónarkennari er þó ávallt ábyrgur fyrir því að námið sé í samræmi við reglur um meistaranámið. Umsjónarkennari skal vera fastráðinn kennari (lektor, dósent eða prófessor) í viðkomandi deild. Nú er leiðbeinandi ekki fastur kennari og er þá nauðsynlegt að hann hafi a.m.k. lokið meistaraprófi á viðkomandi fræðasviði. Gæta þarf þess að verkefni nemandans sé á sérsviði leiðbeinandans.

11. gr.

Gæðamál.

Námsstjórn ber ábyrgð á að framgangur námsins sé í samræmi við námsáætlun, svo og að tryggja fagleg gæði rannsóknarvinnunnar í samræmi við reglur.

12. gr.

Prófdómarar.

Námsstjórnin tilnefnir prófdómara. Prófdómari og umsjónarkennari/leiðbeinandi prófa meistara-nema og leggja mat á lokaverkefni.

13. gr.

Námsmat og meistarapróf.

Um einkunnir gilda sérreglur lagadeildar og viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands fyrir einstök námskeið. Í meistaraprófi má ákveða að nemandi flytji opinberan fyrirlestur um lokaverkefnið en að honum loknum er nemandinn prófaður. Prófdómari og umsjónarkennari/leiðbeinandi, meta frammi-stöðu nemanda og úrskurða hvort nemandi hafi staðist prófið.

14. gr.

Skil og frágangur meistararitgerða.

Meistaraprófsritgerð skal leggja fram í þremur eintökum á skrifstofu umsjónardeildar, þann 5. janúar vegna útskriftar í febrúar og 5. maí vegna útskriftar í júní. Við frágang lokaritgerða og meðferð heimilda skal nemandi fylgja reglum um form ritgerða og reglum um meistararitgerðir sem gilda í þeirri samstarfsdeild sem ritgerðarefnið heyrir undir. Koma skal skýrt fram að verkefnið sé unnið innan skattaréttar og reikningsskila og við þá deild sem nemandinn brautskráist frá. Ritgerð skal vera á íslensku. Heimilt er að hafa hana á öðrum tungumálum ef námsstjórn samþykkir. Nr. 484 18. maí 2010

15. gr.

Tengsl við aðra háskóla.

Hluta meistaranáms má taka við aðra háskóla eða viðurkenndar rannsókna- eða vísindastofnanir með samþykki námsstjórnar.

16. gr.

Lærdómstitill.

Meistarapróf samkvæmt þessum reglum veitir rétt til lærdómstitilsins Magister artium í skatta-rétti og reikningskilum (Master of tax law and accounting).

17. gr.

Gildistaka o.fl.

Þessar reglur sem hafa verið samþykktar af viðkomandi háskóladeildum og hafa einnig hlotið staðfestingu háskólaráðs, sbr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um Háskóla Íslands og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi.

Auk birtingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 1. mgr. 28. gr. laga nr. 85/2008, skal birta reglurnar í kafla þverfaglegs náms í kennsluskrá og á heimasíðu aðildardeildanna.

Háskóla Íslands, 18. maí 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

__________

B-deild – Útgáfud.: 4. júní 2010

 


Síða 1 af 82

Á döfinni

15.sep - Eindagi staðgreiðslu
05.okt - Eindagi VSK
29.okt - Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lýkur
síðasta mánuð September 2010 næsta mánuð
M Þ M F F L S
week 35 1 2 3 4 5
week 36 6 7 8 9 10 11 12
week 37 13 14 15 16 17 18 19
week 38 20 21 22 23 24 25 26
week 39 27 28 29 30

Heimsóknir

Í dag: 4
Í gær: 36
Samtals síðan 15/2/07: 63677
Þú ert hér  : Heima Fréttir

Veftré

icontexto-webdev-site-map-048x048Smelltu hér
fyrir veftré

Launakannanir FVB

icontexto-webdev-money-048x048Smelltu hér til að
sjá niðurstöður

Gerast félagsmaður

icontexto-webdev-add-048x048Smelltu hér til að
gerast félagsmaður

Félagaskrá FVB

icontexto-webdev-user-048x048Smelltu hér til
að sjá félagaskrá FVB

Tenglar

icontexto-webdev-config-048x048Smelltu hér
fyrir tenglasafn

Faglegt efni

icontexto-webdev-file-048x048Smelltu hér
fyrir faglegt efni