Námskeið nr. 2 í október

                         Námskeið númer 2 í október 2021  

Rafræn vinnustofa, fræðsla og umræður hjá fræðslunefnd FVB þriðjudaginn 19. október frá kl. 16.30 til 19.00. Síðdegisnámskeið

„Ertu að stofna fyrirtæki eða byrja í rekstri? Hvað ber að hafa í huga?“

Leiðbeinandi:  Elísa Berglind Sigurjónsdóttir. Elísa er leiðbeinandi í bókhaldi hjá Endurmenntun HÍ og hefur um árabil leiðbeint aðilum sem hyggja á sjálfstæða starfsemi, hvort heldur með rekstur á eigin kennitölu eða í gegnum félög með fyrstu skrefin, ábyrgð og skyldur.

Það sem verður tekið fyrir:

  • Hvaða rekstrarform hentar starfseminni?
  • Farið yfir nokkur rekstrarform og mismun á þeim, t.d. rekstur á eigin kennitölu, samlagsfélag, einkahlutafélag
  • Ábyrgð og skyldur skv. lögum
    • Stjórnarmanna? Framkvæmdastjóra? Stjórnarfomanns? Skoðunarmanns?
    • Rekstraraðila
  • Bókhaldsskylda
    • Frágangur gagna
  • Skilgreiningar á nokkrum hugtökum
  • Farið yfir stofnun einkahlutafélags
  • Þarf að sækja um VSK númer?
  • Gluggað í lög og reglugerðir
  • Skráning á launagreiðendaskrá

ATH. Fyrirlestrinum verður sendur út á Zoom í rauntíma. Linkur til að taka þátt í fyrirlestrinum verður sendur á þátttakendur daginn áður.

Verð: Félagsmenn  kr. 3.900  Utanfélagsmenn kr. 5.900

 

Athugið  aðeins 35 manns í hóp svo allir fái sem mest útúr námskeiðinu.

 

 

ATH  Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.

Námskeiðið gefur 4  endurmenntunarpunkta

Skráning  er á vef FVB til og með sunnudagsins 17. október.  

Fræðslunefnd