DK – Hraðnámskeið – Innlestur banka gegnum dagbók

DK  –  Hraðnámskeið á TEAMS

 

Námskeið þriðjudaginn 23. apríl kl. 9.00 – 10.00

                   DK  –  Hraðnámskeið á TEAMS

        Innlestur bankareikninga í gegnum dagbók.

Stutt og hnitmiðað námskeið – ekki missa af þessu!

Í samstarfi við DK – ætlum við að bjóða uppá næsta hraðnámskeið  ef næg þátttaka fæst.

Verðið er aðeins kr.  3.900 fyrir félagsmenn FVB (kostar annars 9.900)

Verð fyrir utanfélagsmenn er kr.  6.900

         Kennari á þessu námskeiði er: Jórunn Kristín Fjeldsted hjá DK

 

Um námskeiðið:

DK býður nú upp á að sækja bankahreyfingar í gegn um dagbók í stað bankahreyfinga. Þegar lesið er inn í dagbók er hægt að setja bókunarskilgreiningar á færslur sem kerfið man næst þegar lesið er inn. Innlesturinn  þekkir bæði greiddar innheimtukröfur (bókað í gegn um skuldunauta) og færslur sem búið er að bóka hafi þær verið sóttar í gegn um dagbókina og er ekki viðkvæmur fyrir dagsetningum. Allar færslur sem bókaðar eru jafnast sjálfkrafa. Það felst því verulegur vinnusparnaður í að sækja og bóka bankahreyfingar með þessum hætti.

 

 

Námskeiðið er haldið þriðjudaginn 23. apríl  Ath.  aðeins á Teams  (ekki upptaka)

 Linkur til að taka þátt í námskeiðinu verður sendur út á þátttakendur daginn áður.

 

Verð fyrir félagsmenn   kr. 3.900.  –  Fyrir fólk utan félags  kr. 6.900

ATHUGIÐ:   Skráið ykkur sem fyrst – ekki missa af þessu tækifæri – Takmarkanir á fjölda.

ATH.  Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.

Námskeiðið gefur 1,5  endurmenntunarpunkta

Skráning er á vef FVB til og með mánudagsins 22. apríl nk.

Fræðslunefndin

 

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ