Um FVB

Félagsgjald er kr. 20.000,- sem greitt er í tvennu lagi í apríl og í september.

Inntökugjald er kr. 5.000,- greitt einu sinni. Og er dregið af fyrstu greiðslu af félagsgjaldi.

Félag viðurkenndra bókara var stofnað 26. janúar 2002, stofnfélagar voru 33.

Tilgangur félagsins er m.a.

  1. Að viðhalda og auka faglega þekkingu félagsmanna.
  2. Að vinna að bættri þjónustu félagsmanna við viðskiptavini sína, opinbera aðila og aðra er byggja á störfum þeirra.
  3. Að vinna að kynningu á starfssviði félagsmanna.
  4. Að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna.

Samkvæmt 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald er þeim einum heimilt að kalla sig Viðurkenndan bókara sem staðist hefur próf í bókfærslu, helstu atriðum reikningsskila og lögum og reglum um skattskil.