RSK – Lög um breytingu á lagaák. um lífsj- hækkun úr 10 í 12 %

Lágmarksiðgjald til lífeyrissjóða hækkar úr 10% í 12% af
iðgjaldsstofni .

 Iðgjald launagreiðanda hækkar
úr 6% í 8% .

Iðgjald launþega er óbreytt þ.e. 4%.
 Lögin öðlast gildi 1. janúar
2007.


Lög
um breyting á lagaákvæðum um
lífeyrissjóði.




I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 129/1997,
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari
breytingum.

1. gr.


    Í stað
hlutfallstölunnar „10%“ í 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna kemur:
12%.


2. gr.

    Á
eftir 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir sem orðast
svo: Lífeyrissjóði skv. 1. málsl., sem nýtur ekki lengur bakábyrgðar, er skylt
að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins í samræmi við ákvæði 2.
mgr. 39. gr. Skulu slíkar breytingar taka mið af ákvæðum 4. gr. um
lágmarkstryggingavernd.


3. gr.

    Við
lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
    Nú er í gildandi
kjarasamningi kveðið á um að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs skuli vera 10% og
skal þá heimilt að miða áfram við hlutfallstöluna 10% í 2. málsl. 1. mgr. 2. gr.
laga þessara þar til nýr kjarasamningur öðlast gildi.


II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 1/1997,
um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins,
með síðari breytingum.

4.
gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „6%“ í 1. og 3.
málsl. 4. mgr. 13. gr. laganna kemur: 8%.


5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
    a.      Í
stað hlutfallstölunnar „6%“ í 3. mgr. kemur: 8%.
    b.      Í stað
hlutfallstölunnar „10%“ í 4. málsl. 4. mgr. kemur: 12%.


6. gr.

    Í
stað hlutfallstölunnar „6%“ í 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: 8%.


7. gr.

    2.
mgr. 30. gr. laganna orðast svo:
    Sé staða eða starfi sjóðfélagans lagður
niður á hann rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld í sama hlutfalli
og heildariðgjöld hvers sjóðfélaga eru á hverjum tíma. Iðgjöld skulu miðuð við
þau laun er sjóðfélagi hafði er staða hans var lögð niður en iðgjaldsstofninn
skal breytast í samræmi við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra
starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 3. mgr. 24. gr.


III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 2/1997,
um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga,
með síðari breytingum.

8.
gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr.
laganna:
    a.      Í stað hlutfallstölunnar „6%“ í 3. mgr. kemur: 8%.
    b.      Í stað hlutfallstölunnar „10%“ í 4. málsl. 4. mgr. kemur: 12%.


9. gr.

    Í
stað hlutfallstölunnar „6%“ í 3. mgr. 9. gr. laganna kemur: 8%.


10. gr.

    2.
mgr. 14. gr. laganna orðast svo:
    Sé staða eða starfi sjóðfélagans lagður
niður á hann rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld í sama hlutfalli
og heildariðgjöld hvers sjóðfélaga eru á hverjum tíma. Iðgjöld skulu miðuð við
þau laun er sjóðfélagi hafði er staða hans var lögð niður en iðgjaldsstofninn
skal breytast í samræmi við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra
starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 3. mgr. 8. gr.


IV. KAFLI
Breyting á lögum nr.
155/1998, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda,
með síðari breytingum.

11.
gr.

    1. mgr. 5. gr. laganna orðast
svo:
    Iðgjald til sjóðsins skal að lágmarki nema 12% af iðgjaldsstofni,
sbr. 2. mgr., sem skiptist þannig að launþegi greiðir 4% en launagreiðandi að
lágmarki 8%.


V. KAFLI
Breyting á lögum nr. 12/1999,
um Lífeyrissjóð bænda, með síðari breytingum.

12.
gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.
laganna:
    a.      Í stað hlutfallstölunnar „6%“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur:
8%.
    b.      Í stað hlutfallstalnanna „10%“ og „6%“ í 3. mgr. kemur: 12%;
og: 8%.


VI. KAFLI
Breyting á lögum nr. 95/2000,
um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum.

13.
gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „6%“ í 1. mgr. 14.
gr. laganna kemur: 8%.


VII. KAFLI
Breyting á lögum nr.
88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum.

14.
gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „10%“ í d-lið 5.
gr. laganna kemur: 12%.


VIII. KAFLI
Breyting á lögum nr.
90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

15.
gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „10%“ í 3. mgr. 5.
tölul. 28. gr. laganna kemur: 12%.


IX. KAFLI
Gildistaka.

16.
gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar
2007.


Samþykkt á Alþingi 9. desember 2006.