RSK – formleg auglýsing v. – staðgreiðslu árið 2007.

Formleg AUGLÝSING     um innheimtuhlutfall í staðgreiðslu árið 2007.  

Nr. 1061/2006
19. desember 2006


AUGLÝSING

um innheimtuhlutfall í staðgreiðslu
árið 2007.

Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu er samanlagt
hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum um tekjuskatt og útsvars eins og það er
samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga.
Tekjuskattshlutfall á árinu 2007 verður 22,75%. Meðalútsvar á árinu 2007
samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,97%.
Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2007 verður því 35,72%.

Fjármálaráðuneytinu, 19. desember
2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.