Search
Close this search box.

Opni háskólinn – námskeið

 

Opni háskólinní HR kynnir stutt og hagnýt námskeið sérsniðin að þörfum þeirra sem starfa við bókhald. Endurmenntunareiningar FVB fást fyrir að sitja námskeiðin.

 

Félagsmenn FVB fá 10% afslátt á námskeiðin. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á verkefnastjóra námskeiðs, [email protected] áður en námskeiðið hefst til að fá þessi sérkjör.

 

Excel í starfi bókarans

Hefst 28.október (16 klst.)

Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig nota má töfluforritið Excel til að auka afköst og skilvirkni í störfum bókara, m.a. við yfirferð vinnuskjala, vinnslu gagna og útreikninga. Meðal efnistaka er uppsetning ársreiknings, gerð fyrningatöflu, gerð lánatöflu, VSK afstemming, veltitöflur (Pivot) ásamt því að farið verður í helstu aðgerðir í Excel, flýtihnappa, formúlur, útlit skjala og framsetningu gagna.

Tími: Kennsla fer fram á mánudögum og þriðjudögum dagana 28. og 29. október og 4. og 5. nóvember frá kl. 16.00 – 20.00 alla dagana.

Verð:62.000 kr.

 

Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

 

Námskeiðið veitir samtals 30 endurmenntunareiningar FVB.

 

Skráning og nánari upplýsingar

 

 

Tekjuskattsskuldbinding, sjóðstreymi og skattar
26. og 27. nóvember (8 klst.)

Á námskeiðinu verður farið í upprifjun á sjóðstreymi og skattaútreikningum fyrirtækja auk þess sem fjallað verður um nýjungar í skattamálum eftir því sem við á. Þá verður farið ítarlega í útreikninga tekjuskattsskuldbindingar.

Tími:Kennsla fer fram þriðjudaginn 26. nóvember og miðvikudaginn 27. nóvember frá kl. 13.00 – 17.00 báða dagana.

 

Verð:39.000 kr.

 

Leiðbeinandi:Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

Námskeiðið veitir samtals 15 endurmenntunareiningar FVB.

Skráning og nánari upplýsingar

 

 

 
 

–