Launakönnun 2014

Kæru félagsmenn,

launakönnun FVB 2014 stendur nú yfir. Allir félagsmenn hafa fengið sendan tölvupóst með slóð á könnunina og er mjög mikilvægt að sem flestir taki þátt.

Ef þið hafið ekki fengið tölvupóstinn þá gæti verið ráð að kíkja í ruslpóstsíuna og athuga hvort pósturinn hafi lent þar. Ef þið notið Gmail, þá getur verið sniðugt að kíkja í Updates-flipann.

Eins getur verið að netfangið sé rangt skráð í félagaskránni og eru allir félagsmenn hvattir til að ganga úr skugga um það.

Netfang sendanda birtist sem „[email protected] via surveymonkey.com“ svo hægt er að leita eftir því.

Ef þið hafið einhverjar spurningar um könnunina eða finnið ekki tölvupóstinn, sendið þá póst á vefstjori(hjá)fvb.is

 

með kveðju,
Vefstjóri FVB