Viðurkenndur bókari. Kynningarfundur 20. maí.

VIÐURKENNDUR BÓKARI

– STAÐNÁM EÐA FJARNÁM

   
   
 
Endurmenntun HÍ býður nú í fjórða sinn nám til undirbúnings fyrir próf til viðurkenningar bókara á vegum Atvinnuvega- og nýsköpurnarráðuneytisins skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald.

Námið er eitt misseri og byggir á prófefnislýsingu skv. 3. gr. reglugerðar nr. 535/2012 um próf til viðurkenningar bókara 3. útgáfa (júní 2014), sjá nánar á vef ráðuneytisins. Prófhlutar til viðurkenningar bókara eru: Reikningshald, skattskil og upplýsingatækni ásamt raunhæfu verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta.

Markmið: 
Auka fræðilega þekkingu próftaka og hæfni til að beita henni í starfi, í samræmi við prófefnislýsingu og skilgreind hæfniviðmið sem auglýst eru af prófnefnd á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Kynna meginreglur og aðferðir reikningshalds, skattskila og upplýsingatækni í því lagaumhverfi sem það byggir á. Auka víðsýni og færni próftaka til að beita þekkingu sinni við lausn hagnýtra viðfangefna með aðstoð Excel töflureiknis.

Fyrir hverja:
Námið er einkum ætlað þeim sem starfa á sviðum bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og stofnana.
Mælt er með því að umsækjendur hafi starfað við bókhald og hafi haldgóða þekkingu og reynslu af bókhaldsstörfum sem og Excel töflureikni.

Kennslufyrirkomulag:
Kennt verður tvo daga í viku föstudaga og laugardaga.
Fyrirlestrar verða teknir upp og nemendum aðgengilegir á samskiptavef námsins. Upptökur eiga ekki við um verklega þætti námsins.

 
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG KYNNINGARMYNDBAND

 
 
 
 
SÆKJA UM

 
 
 
  KYNNINGARFUNDUR
20. MAÍ KL. 17:00

UMSÓKNARFRESTUR
TIL 1. JÚNÍ

 
 
   
 

Kennsla/umsjón

Ásmundur G. Vilhjálmsson, lögmaður og aðjúnkt í skattarétti við viðskiptafræðideild HÍ.
Dr. Gunnar Óskarsson, aðjúnkt við viðskiptafræðideild HÍ.
Snorri Jónsson, Master of Accounting and Auditing.

Hvenær

Kennt er í 10 lotum. Kennsla hefst 14. ágúst og lýkur 5. desember. Kennt er aðra hverja helgi Kennsla fer fram á fös. kl. 16:15 – 19:15 og lau. 8:30 – 12:00 og 12:30 – 16:00.
Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar.

Verð

165.000 kr

 
     
 
     

Hafðu samband

Netfang
[email protected]

Sími
525 4444

 

Samfélagsmiðlar

VIÐ ERUM Á
FACEBOOK

 
 
Endurmenntun Háskóla Íslands – Dunhaga 7, 107 Reykjavík – www.endurmenntun.is