Search
Close this search box.

Barnabætur í fyrirframgreiðslu v 1.ársfj. 2016

Þann 1. febrúar verða greiddar út barnabætur í fyrirframgreiðslu vegna 1. ársfjórðungs 2016.  
Bæturnar eru greiddar skv. A-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 555/2004 um greiðslu barnabóta.


Í fyrirframgreiðslunni eru greiddar út 50% af áætluðum barnabótum  ársins.
        Þær eru greiddar út 1. febrúar og 1. maí
        Bæturnar eru ákvarðaðar m.v. fjölskyldustöðu í lok árs árið á undan, þ.e. 31.desember 2015.
        Miðað er við tekjur í staðgreiðslu nóv –des 2014 og jan. – okt. 2015, ásamt uppl. um tekjur utan staðgr. af
        síðasta framtali, þ.e. hagnaður af rekstri og fjármagnstekjur (vaxtatekjur, söluhagnaður og arður) 

Skuldajöfnun:Aðeins er heimilt að skuldajafna barnabótum á móti ofgreiddum barnabótum skv. 7. gr. reglugerðar nr. 555/2004.

Þeir sem fá ekki fyrirframgreiðslu sjálfkrafa sækja um á eyðublaði RSK 3.18 “Umsókn um leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum 2016” fyrir 4. apríl.     Gerðar hafa verið smá breytingar á eyðublaðinu milli ára.


Hverjir fá ekki sjálfkrafa fyrirframgreiðslu?

–  Framtal ársins á undan í áætlun –
         Skila þarf skattframtali og sækja um fyrirframgreiðslu á  RSK 3.18.
         Ef framtali hefur verið skilað en ekki afgreitt þarf að skila RSk 3.18 

–  Aðfluttir/brottfluttir á tekjuárinu 
        Hafa ekki haft búsetu hér á landi allt árið 2014 (skv. Þjóðskrá)   Þarf að skila RSK 3.18

–  Námsmenn erlendis  lögh. erlendis 
        Námsmenn erlendis sem  ætla að sækja um skattalega heimilisfesti þurfa að láta fylgja með viðeigandi gögn. Þarf að skila RSK 3.18
                1. Vottorð um nám erlendis      2. Staðfest gögn frá erlendum skattyfirvöldum um tekjur eða tekjuleysi.    3. Staðfest gögn um barnabætur erlendis.

–  Aðsetur erlendis  E-merktir (sést í G2 í Advania árið 2016 velja F9)
        Þarf að skila RSK 3.18 – Fylgja með upplýsingar um tekjur eða tekjuleysi erlendis.  

–  Hjón ekki samvistum  7-merktir í Þjóðskrá
        Þurfa að sækja um á RSK 3.18 ásamt gögnum um tekjur maka erlendis.

–  Hjúskaparstaða óþekkt   9-merktir í Þjóðskrá
        Þurfa að leggja fram hjúskaparvottorð frá því landi sem þeir koma frá.

Fleiri atriði sem gott er að hafa í huga þegar gjaldendur hringja.

  • Ekki er heimilt að gefa upp fjárhæðir í síma Bent skla á  að nota má reiknivél barnabóta á rsk.is
  • Stefnt er að því að vinna umsóknir RSK 3.18 innan tveggja vikna frá því að þær berast, ef öll gögn liggja fyrir.  Þetta tekur gildi 1. febrúar.
  • Allar fjármagnstekjur koma inn í tekjustofn til skerðingar bótum,  á það einnig við um vaxtatekjur af bankainnstæðum.
  • Sérstök úttekt úr séreignasparnaði á ekki að koma inn í tekjustofn til skerðingar.
  • Allar barnabæturnar eru tekjutengdar, líka vegna barna undir 7 ára aldri.
  • Þeir sem standa í skilnaði á árinu 2015, sem ekki er búið að skrá í Þjóðskrá, fá barnabætur sem hjón í fyrirframgreiðslunni.  Þessir aðilar geta sótt um barnabætur einstæðs foreldris á eyðublaði RSK 3.18. Gögn frá sýslumanni þurfa að fylgja með því til staðfestingar. (Afrit út hjónaskilnaðarbók / sifjamálabók)
  • Barnabætur afþakkaðar !!!!  Maki vinnur og/eða býr erlendis og er með háar tekjur þar.    Ef aðili ætlar að sækja um EES barnabætur erlendis, t.d. í Noregi þá neita þeir að greiða barnabætur ef þær hafa verið afþakkaðar hér. Fylla skal út
  •     RSK 14.10 Beiðni um vottorð – eyðublað  eða svara á þar til gerðum eyðublöðum milli landa.
  • Ný sambúð á árinu – Þeir sem skrá sig í sambúð á árinu fá barnabætur sem hjón.  Ef þau uppfylla ekki skilyrðin að telja fram saman (þ.e. eiga barn saman, barn á leiðinni eða hafa ekki búið saman í eitt ár á tekjuárinu) getur framfærandi barnsins sótt um barnabætur sem einstætt foreldi.
  • Óskráð sambúð – Sá aðili sem er með börn á framfæri,  er í óskráðri sambúð  og uppfyllir skilyrðin (tilgr. hér að ofan) fær fyrirframgreiðslu sem einstætt foreldri, en getur verið ákvarðaður sem sérskattað sambýli á skattframtali og þarf þá að endurgreiða í álagningunni rangt ákvarðaða fyrirframgreiðslu barnabóta. Til að komast hjá þessu þarf að óska eftir leiðréttingu á RSK 3.18 í upphafi árs.  
  • Alþjóðamáladeild rsk  svarar fyrir EES barnabætur
Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur