Search
Close this search box.

Breytingar á ferðakostnaði og akstursgjaldi ríkisstarfsmanna

Breytingar á ferðakostnaði og akstursgjaldi ríkisstarfsmanna

28.5.2013

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið breytingar á akstursgjaldi og á dagpeningum til greiðslu gisti- og ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands.

Ákvarðanirnar taka gildi 1. júní 2013.”

Akstursgjald ríkisstarfsmanna – auglýsing nr. 1/2013

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

Fyrstu 10.000 km, kr. 116,00 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 104,50 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 93,00 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2012 dagsett 8. maí 2012.
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 24. maí 2013.
Ferðakostnaðarnefnd

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands – auglýsing nr. 2/2013

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir: 
1.        Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 29.400 
2.        Gisting í einn sólarhring, kr. 18.600 
3.        Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 10.800 
4.        Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 5.400

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2012 dags. 3. október 2012.

Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 24. maí 2013
Ferðakostnaðarnefnd


Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur