Kæru félagsmenn,
Vinsamlega skráið ykkur inn á heimasíðu félagsins og uppfærið persónuupplýsingar þar sem
töluvert hefur borið á því að netföng og aðrar upplýsingar eru ekki réttar og lendum við því oft í
villum þegar við erum að senda út reikninga, fréttabréf og aðrar tilkynningar.
Launakönnuninverður send út í tölvupósti til félagsamanna næstu daga þannig að ef netöng
eru ekki rétt skilar könnunin sér ekki. Könnunin verður opin í tvær vikur og munu þá þeir félagsmenn
sem hafa ekki lokið henni fá áminningu. Ef svar berst ekki þrátt fyrir ítrekun er litið svo á að
félagsmaður hafi ekki ætlað sér að taka þátt í henni. Svörin verða órekjanlega, þau eru ekki
skráð á þau netföng sem þau berast frá.
Félagsgjöld ársins 2013 verða send út í byrjun mars og er miðað við félagaskrána á
vefsíðunni okkar. Reikningar vegna félagsgjalda og námskeiða verða eingöngu sendir á
það netfang sem skráð er þar og er félagsmaður skuldbundinn til þess að koma reikningi
á þann sem greiðir ef annar en félagsmaður. Kröfur eru svo stofnaðar á banka á kennitölu
skráðs greiðanda. Ef greiðandi er annar en félagsmaður þarf að skrá það sérstaklega inn
undir notandavalmynd ( lengst til hægri) og breyta persónuupplýsingum. Ef enginn ákveðinn
greiðandi er skráður þar inn fara félagsgjöld á kennitölu félagsmanns.
Ef félagsmaður hefur gleymt aðangsorði sínu má smella á “gleymt aðgangsorð” (efst til hægri)
og verður þá sent nýtt á það netfang sem er skráð í félagaskránni okkar. Einnig má senda
tölvupóst á [email protected] til að fá frekari aðstoð.
Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður