Félagaskrá

Kæru félagsmenn,
Vinsamlega skráið ykkur  inn á heimasíðu félagsins og uppfærið  persónuupplýsingar  þar sem töluvert hefur borið á því að netföng og aðrar upplýsingar eru ekki réttar og lendum við því oft í villum þegar við erum að senda út reikninga, fréttabréf og aðrar tilkynningar.  Einnig er mikilvægt að þar komi fram greiðandi ef annar en félagsmaður. Félagsgjöld ársins 2013 verða send út í byrjun mars og er miðað við félagaskrána á vefsíðunni okkar.  Reikningar vegna félagsgjalda og námskeiða verða  eingöngu sendir á það netfang sem skráð er þar og er félagsmaður skuldbundinn til þess að koma reikningi á þann sem greiðir ef annar en félagsmaður.  Kröfur eru svo stofnaðar á banka á kennitölu skráðs greiðanda.

Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður