Minnum á námskeiðið á þriðjudaginn nk.

Við minnum á námskeiðið, Samningatækni fyrir konur, sem hefst á þriðjudaginn nk. Skráning stendur ennþá yfir og er hægt að senda póst á [email protected] til að skrá sig. Staður: VR salurinn í Húsi verslunarinnar (gengið inn hjá hárgreiðslustofunni Hár) Tími: Þriðjudaginn 9.október og fimmtudaginn 18.október kl.17:30-20:30 (nauðsynlegt að mæta bæði kvöldin) Verð: 8.500 kr fyrir félagsmenn og […]

RSK – Skipun nefndarmanns í yfirskattanefnd

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 19/2007 Fjármálaráðherra hefur skipað Ragnheiði Snorradóttur til að gegna starfi nefndarmanns í yfirskattanefnd með starfið að aðalstarfi. Ragnheiður hefur starfað sem lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu frá árinu 1994. Hún lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og meistaraprófi í skattarétti við Copenhagen Business School vorið 2007. Yfirskattanefnd starfar skv. lögum nr. […]

Námskeið í samningatækni – verð ofl.

Námskeiðið hennar Silju Báru, Hennar sæti við borðið – samningatækni fyrir konur, verður haldið þriðjudaginn 9.október og fimmtudaginn 18.október kl.17:30-20:30 í VR salnum í Húsi verslunarinnar (gengið inn hjá hárgreiðslustofunni Hár). Verð er 8.500 kr fyrir félagsmenn og 12.000 kr fyrir utanfélagsmenn. Sendið tilkynningu um þátttöku á [email protected]. Nánar um námskeiðið

Velkomin(n) á vefsíðu Félags viðurkenndra bókara!

Þessi síða birtist eftir að þú hefur skráð þig inn á síðu Félags viðurkenndra bókara (www.fvb.is) í fyrsta sinn. Vefsíðunni er fyrst og fremst ætlað að vera upplýsingaveita fyrir félagsmenn. Nýjustu upplýsingar frá RSK er varða félagsmenn eru reglulega settar á fréttasíðuna sem og fréttir af félagsstarfinu. Allir félagsmenn eru skráðir á póstlista félagsins við inngöngu […]

VR – Hádegisverðarfyrirlestrar 2007-2008

Félagsmenn okkar sem eru í VR! Hádegisverðarfyrirlestrar 2007 – 2008 Nú í vetur  býður VR félagsmönnum á fyrirlestra í hádeginu þar sem sérfræðingar ræða um áhugaverð málefni. Fyrirlestrarnir hefjast í haus og verða upplýsingar um þá birtar á síðunni þegar nær dregur http://www.vr.is.  Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og ókeypis. Þeir eru haldnir í sal VR […]

RSK – ákvarðandi bréf

Meðfylgjandi er nýtt  ákvarðandi bréf ríkisskattstjóra sem m.a. varðar útgáfu sölureikninga í þeim tilvikum að  íslenskur sérfræðingur vinni fyrir  íslensk félög . Vinna hans  varði þó ekki rekstur félaganna hér á landi . Niðurstaða RSK var sú að sérfræðingurinn geti gefið út reikning á félögin án virðisaukaskatts, enda sé um að ræða þjónustu sem nýtt […]

Hennar sæti við borðið – samningatækni fyrir konur

Endurmenntun FVB ætlar að halda samningatækninámskeið í október í samstarfi við Silju Báru Ómarsdóttur. Námskeiðið byggir á fyrirlestri um samningatækni og sérstaklega stöðu kvenna og reynslu í samningum. Þó svo mörg vandamál sem taka þarf á í samningaferli hafi ekkert með kyn að gera, þá mótar reynsla okkar hvernig við bregðumst við vandamálum, og kyn […]