Search
Close this search box.

Haust 2013

Kæru félagsmenn,

Nú er vetrarstarfið að hefjast og margt fram undan í vetur. Fyrsta námskeiðið verður hjá okkur í næstu viku, sjá auglýsingu hér á síðu félagsins. Við vonumst til að geta sent út sem flest námskeið á Akureyri, og Vestmannaeyjum og jafnvel víðar með fjarfundabúnaði á þessu starfsári.

Skrifað hefur verið undir samning við Endurmenntun HÍ þar sem báðir aðilar skuldbinda sig til að vinna ötullega að endurmenntun félagsmanna á sem bestan og fagmannlegastan hátt. Við bindum miklar vonir við að geta aukið framboð námskeiða ásamt stærri húsakynnum. Við hlökkum til vetrarins vonumst til að samstarfið skili góðum árangri í þágu félagsmanna í að viðhalda endurmenntun.

Aðalfundarfundardagurinn verður 15. nóvember næstkomandi og mun dagskrá hefjast fljótlega eftir hádegi með fræðslu eins og venjan er og svo aðalfundur félagsins í kjölfarið. Dagskrá dagsins verður auglýst þegar nær dregur. Einnig verða auglýst laus störf í félaginu og óskað eftir framboðum, margt spennandi í boði fyrir þá sem vilja kynnast félagsstörfum og efla hæfileika sína á þessu sviði. Framboð verða auglýst á heimasíðu félagsins og baráttan verður án efa hörð um þau sæti sem eru í boði.

Af gefnu tilefni vil ég minna á reglur varðandi skráningu/afskráingu á viðburði á vegum félagsins. Undirbúningur námskeiða hjá okkur byggist á fjölda þeirra sem skráður er bæði varðandi sæti og veitingar. Of oft eru mörg auð sæti vegna þess að þátttakendur hafa ekki boðað forföll og hleypt þeim að sem eru á biðlista.  

Afskráning af viðburði eða námskeiði

Félagsmenn þurfa að afskrá sig ef til forfalla kemur, vegna viðburða eða námskeiða sem eru á vegum félagsins áður en námskeið hefst. Ef það er ekki gert sér félagið sér ekki annað fært en að senda reikning á viðkomandi vegna námskeiðagjaldanna og er félagsmaður því skuldbundinn að greiða það.

Til þess að afskrá þig þarftu að:

 

  • haka við nafnið þitt í listanum og smella á hnappinn Eyða (krefst innskráningar)

 

eða senda póst á [email protected] eða [email protected] áður en viðburður hefst.

Við hlökkum til vetrarins og vonumst til að samstarfið við ykkur verði sem ánægjulegast

 

Fyrir hönd stjórnar  FVB

Júlía Sigurbergsdóttir, formaður

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur