HR námskeið

Skattskil í HR

Opni háskólinn í HR í samstarfi við Félag viðurkenndra bókara   (FVB) kynnir stutt

og hagnýt námskeið sérsniðin að þörfum þeirra sem starfa við bókhald.

Endurmenntunareiningar FVB fást fyrir að sitja námskeiðin.

Félagsmenn FVB fá 10% afslátt á námskeiðin. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að

senda tölvupóstá verkefnastjóra námskeiðsins, [email protected], áður en námskeiðið hefst

til að fá þessi sérkjör.

Leiðbeinandi námskeiðanna er Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi Deloitte.

Skráning í fullum gangi, tryggðu þér sæti!

   

Excel í starfi bókarans

Farið verður yfir það hvernig nota má töfluforritið Excel til að auka afköst og skilvirkni í

störfum bókara, m.a. við yfirferð vinnuskjala, vinnslu gagna og útreikninga. Meðal efnistaka

er uppsetning ársreiknings, gerð fyrningatöflu, gerð lánatöflu og VSK afstemming.

Tími: Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum dagana 15., 17., 22. og 24. apríl

frá kl.16:00 – 20:00 alla dagana.

Verð: 62.000 kr.  Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.

Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

Endurmenntunareiningar FVB: 30 ein.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING

TEKJUSKATTSSKULDBINDING, SJÓÐSTREYMI OG SKATTAR

Námskeið í reikningshaldi fyrir starfandi bókara. Á námskeiðinu verður farið í upprifjun á

sjóðstreymi og skattaútreikninga fyrirtækja auk þess sem fjallað verður um nýjungar í

skattamálum eftir því sem við á. Þá verður farið ítarlega í útreikninga tekjuskattsskuldbindingar.

Tími: Kennsla fer fram miðvikudaginn 15. maí og fimmtudaginn 16. maí frá kl.13 – 16.

Verð: 39.000 kr.

Leiðbeinandi: Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

Endurmenntunareiningar FVB: 15 ein.

   

Hafðu   samband

Frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri:

Erna Tönsberg / netfang: [email protected] / sími: 599 6387

–