Námskeið í samvinnu við HR

Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við Félag viðurkenndra bókara býður félagsmönnum upp á tvö lengri námskeið, annars vegar í Excel og hins vegar í reikningshaldi. Er þetta liður í að viðhalda menntun okkar eins og kostur er og ætti enginn að láta þessi námskeið fram hjá sér fara. Sjá nánar í auglýsingu.

hrlogo is

Excel í starfi
Flýtilyklar og formúlur

Farið verður yfir það hvernig nota má töfluforritið Excel til að auka afköst og skilvirkni í störfum bókara, m.a. við yfirferð vinnuskjala, vinnslu gagna og útreikninga.

Umsóknarfrestur til 27.mars

Reikningshald

Farið verður í upprifjun á sjóðstreymi og skattaútreikninga fyrirtækja auk þess sem fjallað verður um nýjungar í skattamálum eftir því sem við á. Þá verður farið ítarlega í útreikninga tekjuskattsskuldbindingar.

Umsóknarfrestur til 24.apríl

Upplýsingar Skrá mig Upplýsingar Skrá mig


Athugið að flest stéttarfélög veita styrki til námskeiða

Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík, Opna háskólanum og fer skráning fram á síðu skólans.

Nánari upplýsingar:

Hrafnhildur Sigurðardóttir, verkefnafulltrúi
Netfang: [email protected]
Sími: 599 6358