Search
Close this search box.

Ráðstefna FVB 20. nóvember 2026

Ráðstefna FVB 20. nóvember 2026

Ráðstefna Félags viðurkenndra bókara, sem verður haldin föstudaginn 20. nóvember á Grand Hótel – Háteigi hefst kl. 8:30 – 15:40. Tengslamyndun og spjall á barnum kl. 16:00–18:00, með tilboðum á drykkjum

Dagskrá:

7:30 – 8:30 Húsið opnar og morgunverður er framreiddur.

8:30 – 8:35 Formaður setur ráðstefnuna

8:35 – 9:30 Guðbjörg frá Deloitte fjallar um vörsluskatta og ábyrgð stjórnenda á staðgreiðslu og virðisaukaskatti o.þ.h. auk ábyrgðar endurskoðanda eða bókara.

9:35 – 10:25 Anna Guðrún Ragnarsdóttir frá ríkislögreglustjóra, ásamt Sigríði Þóru Þórðardóttur frá ríkisskattstjóra fjalla um áhættumat og niðurstöðu eftirlits Ríkisskattstjóra.

10:30 – 11:00 Sverrir Berg Steinarsson fjallar um gervigreind fyrir bókara.

11:00 – 12:00 Ingrid Kulman frá Þekkingamiðlun: „Það er nóg pláss í klúðursklúbbnum – og aðildin er frí.“

12:00 – 13:20 Hlé, jólahlaðborð að hætti kokkana á Grand

13:20 – 14:20 Halldór Pálsson frá ársreikningaskrá fer yfir áherslur og breytingar á ársreikningum, ábyrgð skoðunarmanna og fleira.

14:20 – 14:55 Jói Sigurðsson og Erla Símonardóttir frá Bella Books fjalla um persónuvernd, gagnahýsingu o.fl.

15:00 – 15:40 Birna Rún Eiríksdóttir verður með uppistand.

 

· Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Verð fyrir félagsmenn er kr. 22.900,- utan félagsmenn greiða kr. 32.900,-

Innifalið: morgunverður, jólahlaðborð í hádeginu og kaffi allan daginn.

 

Skráning er á vef FVB til og með þriðjudeginum 17. nóvember. Fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð salarins.

SKRÁNING OG ÞÁTTTÖKUGJALD ER BINDANDI

 

Viljum benda félagsfólki okkar á að félagsmenn utan að landi njóta sérstakra kjara hjá Grand Hótel.

Stjórn FVB