Search
Close this search box.

RSK – Dómur varðandi vsk og staðgreiðslu

Málið sem hér fylgir:  Ákæruvaldið gegn Gísla Hjartarsyni varðar virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda vegna verktöku Gísla á árunum  1999 til 2001 , alls rúmar níu milljónir króna.

 Fyrir lá að Gísli greiddi ,áður en ákæran var gefin út ,  hluta þeirra gjaldföllnu skattskulda sem ákæra tók til og var við ákvörðun refsingar litið til þess.  Brotin   voru talin meiri háttar í skilningi . almennra hegningarlaga. Fékk Gísli skilorðsbundið fangelsi í 2 mánuði og var honum einnig gert að greiða sekt að fjárhæð 9.200.000 krónur, en niðurstaða héraðsdóms hafði verið ein milljón í sekt en engin fangavist. Hæstiréttur taldi að undanþága frá lágmarki fésektar samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sem tekin var upp með 3. gr. laga nr. 134/2005, ætti við um  hluta skuldanna en eldri reglur að öðru leyti.

Bent skal á að skattrannsóknarstjóri birtir dóma og refsiákvarðanir  er varða mál sem þetta á heimasíðu sinni:  viðhengi