Search
Close this search box.

RSK – Álag vegna skila á virðisaukaskatti. Niðurfelling.Uppgjörstímabil nóvember og desember 2008.

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti 

29.1.2009

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 5/2009

Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er 5. febrúar 2009 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins nóvember og desember 2008.

 

Í 1. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt virðisaukaskattsskýrslu eða til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil á, sbr. 19. gr. laganna. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður eða endurgreiðsla skv. 25. gr. hefur verið of há. Þá skal aðili sæta álagi ef endurgreiðsla skv. 3. og 4. mgr. 42. gr. og 3. mgr. 43. gr. hefur verið of há. Í 6. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna áframhaldandi truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild 6. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið nóvember og desember 2008.

Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. febrúar 2009 og gildi sú niðurfelling í átta daga eða til 13. febrúar 2009.

Reykjavík 29. janúar 2009

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur