Meðfylgjandi er þingskjal sem varðar reikninngsskil o.þ.h.
Um er að ræða þingsályktunartillögu þess efnis að breytt verði vissum ákvæðum EES samningsins í samræmi við tilskipun þar um.
Í greinargerð er breytingunum lýst sem svo:
"Tilskipunin miðar að því að auka trúverðugleika á fjárhagsupplýsingum fyrirtækja. Meðal helstu breytinga sem felast í tilskipuninni er að lagðar eru auknar skyldur og aukin ábyrgð á stjórnarmenn félaga vegna reikningsskila og upplýsinga í ársreikningum. Á það jafnt við um fjárhagslegar og ófjárhagslegar lykilupplýsingar sem varða viðkomandi félag.
Helstu breytingar sem tilskipunin leggur til eru:
– að aðildarríki geti hækkað viðmiðunarmörk lítilla og meðalstórra fyrirtækja um 20% frá þeim mörkum sem um getur í fjórðu og sjöundu félagatilskipun,
– að aðildarríkin geti krafist eða heimilað notkun á gangvirði í reikningsskilum fyrirtækja í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
Einnig eru gerðar kröfur um:
– viðbótarskýringar með ársreikningi varðandi upplýsingar sem ekki koma fram í efnahagsreikningi og færslur til tengdra aðila,
– að ársreikningur fyrirtækis sem skráð er á opinberum markaði innihaldi yfirlýsingu um góða stjórnunarhætti,
– að tryggð sé samábyrgð stjórnarmanna á ársreikningi og skýrslum fyrirtækisins.
Samkvæmt tilskipuninni skal hún innleidd í regluverk aðildarríkjanna fyrir 5. september 2008. Stefnt er að því að innleiða tilskipunina hér á landi á haustþingi 2008 með breytingum á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006." Sjá tilskipunartillögu