Search
Close this search box.

RSK – Reglug. og orðs. fjmrn. Staðgreiðsluhlutfall opinberra gjalda og persónuafsláttur fyrir árið.

Auglýsing um innheimtuhlutfall í staðgeiðslu árið 2009.

Sjá auglýsingu.

Staðgreiðsluhlutfall opinberra gjalda og persónuafsláttur fyrir árið 2009 

31.12.2008

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 26/2008

Staðgreiðsluhlutfall, persónuafsláttur fyrir árið 2009 og útsvarshlutfall sveitarfélaga 2008-2009.

1. Staðgreiðsluhlutfall

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármálaráðuneytið árlega staðgreiðsluhlutfall opinberra gjalda fyrir komandi ár, en það er samtala af tekjuskatthlutfalli samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfalli útsvars samkvæmt ákvörðunum sveitarfélaga á grundvelli laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga

Nýverið voru samþykkt á Alþingi lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum í ljósi versnandi afkomu hins opinbera vegna þess mikla samdráttar sem nú blasir við í íslensku efnahagslífi. Meðal þeirra ráðstafana var hækkun á tekjuskatthlutfalli einstaklinga úr 22,75% í 24,1% og á hámarkshlutfalli útsvars úr 13,03% í 13,28%.

Á árinu 2009 verður tekjuskatthlutfallið því 24,1% í stað 22,75% á yfirstandandi ári. Þá verður meðalútsvar á árinu 2009 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 13,11% [leiðrétt með fréttatilkynningu nr. 27/2008 í 13,1%] en var 12,97% á árinu 2008. Staðgreiðsluhlutfall ársins 2009 verður samkvæmt því 37,2% í stað 35,72% á þessu ári og hækkar samkvæmt því um 1,48 prósentustig milli ára.

Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,28%. Af 78 sveitarfélögum leggja 54 þeirra á hámarksútsvar, þar af nýtir eitt þeirra sérstakt 10% álag sem þýðir að útsvarshlutfallið verður 14,61%. Þrjú sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Eitt sveitarfélag hefur ákveðið að lækka útsvarshlutfallið frá því sem var á þessu ári, en 58 munu hækka það.

2. Persónuafsláttur

Í lok árs 2006 var samþykkt sú breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, að persónuafsláttur skuli endurskoðaður árlega, í fyrsta sinn frá 1. janúar 2008. Samkvæmt A-lið 67. gr. laganna skal fjárhæð persónuafsláttar í upphafi hvers árs breytast í takt við breytingu á vísitölu neysluverðs yfir næstliðið tólf mánaða tímabil. Nú liggur fyrir mæling Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs fyrir desembermánuð 2008 sem reyndist vera 332,9 stig samanborið við 281,8 stig í desember 2007. Hækkunin milli ára nemur samkvæmt því 18,1%.

Í tengslum við gerð kjarasamninga í febrúar 2008 ákvað ríkisstjórnin að beita sér fyrir ýmsum aðgerðum á sviði skattamála til að stuðla að auknum jöfnuði í íslensku samfélagi. Meðal þeirra aðgerða var sérstök hækkun á persónuafslætti í þremur áföngum. Var sú hækkun lögfest síðastliðið vor. Fyrsti áfanginn kemur til framkvæmda í ársbyrjun 2009 þegar persónuafslátturinn hækkar sérstaklega um 2.000 krónur á mánuði, eða samtals 24.000 krónur á ári til viðbótar þeirri hækkun sem hlýst af af hækkun vísitölu neysluverðs.

Það þýðir að á árinu 2009 verður persónuafsláttur hvers einstaklings 506.466 krónur, eða 42.205 krónur að meðaltali á mánuði í stað 34.034 króna, sbr. árið í ár. Hækkunin milli ára nemur samtals 24%.

3. Skattleysismörk

Hlutfallsleg hækkun persónuafsláttar umfram hlutfallslega hækkun tekjuskatts og útsvars leiðir til umtalsverðrar hækkunar í skattleysismörkum einstaklinga. Í dag eru skattleysismörkin liðlega 99 þús.kr á mánuði en verða 118 þús.kr. á mánuði frá og með 1. janúar 2009 (að teknu tilliti til 4% lífeyrissjóðsiðgjalds). Hækkunin nemur 19,1%. Þetta þýðir svo dæmi sé tekið að skattgreiðslur einstaklings með 250 þús. kr. mánaðarlaun lækka um 4.600 kr. á mánuði eða tæp 2%.


· Reykjavík 31. desember 2008

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur