Skattlagning söluhagnaðar – Lúðvík Þráinsson 3. nóv kl. 09:00 – 11:00

Námskeið fræðslunefndar 3. nóvember nk.

Skattlagning söluhagnaðar – Lúðvík Þráinsson

Námskeiðið er í sal VR  ekki á Zoom

Námskeiðið verður haldið í sal VR Kringlunni 7  jarðhæð gengið inn að norðan (Miklubrautarmegin) Fimmtudaginn 3 nóvember kl. 9.00 til 11.00.  Kaffi og veitingar á staðnum.

 

Dagskrá:

Húsið opnar kl. 8.30

 

9.00 – 11.00 Lúðvík Þráinsson   –  Skattlagning söluhagnaðar, þ.m.t. söluhagnaður hlutabréfa, atvinnurekstrareigna , íbúðarhúsnæðis, sumarbústaða, rafmynta, frestunarmöguleika og ýmislegt annað er tengist þessum málum

 

Kaffi og veitingar í hléi

 

Athugið Þetta námskeið verður aðeins á staðnum ekki á Zoom

Verð fyrir félagsmenn   kr. 4.500.  –  Fyrir fólk utan félags  kr. 6.500.-

ATH.  Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.

Námskeiðið gefur 3  endurmenntunarpunkta

Skráning er á vef FVB til og með  mánudagsins 1 nóvember.  Fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð salarins.

Fræðslunefndin