Kæru félagsmenn
Nú líður senn að aðalfundi og kosningum í stjórn og nefndir. Okkur vantar kröftugt og áhugasamt fólk til starfa.
Laus störf eru í stjórn félagsins, fræðslunefnd, skemmtinefnd, laga- samskipta- og aganefnd. Einnig eru störf varamanna stjórna og nefnda laus ásamt starfi skoðunarmanns og varamanns hans.
Þetta er tilvalin leið til að afla sér reynslu í félagsstarfi ásamt því að kynnast skemmtilegu fólki.
Kynnið ykkur starfsemi stjórnar og fræðslunefndar undir flipanum Félagið – stjórn og nefndir – verklagsreglur
Ef nánari upplýsinga er þörf sendið póst á [email protected]
Við hlökkum til nánari samstarfs
Kveðja
Júlía Sigurbergsdóttir
Formaður FVB