Search
Close this search box.

Vissuferð fvb 9. maí 2015

    Dagsetning: 2015-05-09 

    Tími frá: 11:00  

    Verð: 4500 

    Hámarksfjöldi: 50 

    Síðasti skráningardagur: 2015-04-28 

    Lýsing

    Vissuferð Félags viðurkenndra bókara

     Skráningu er lokið

     

    Skemmtinefnd FVB er búin að skipuleggja þessa líka æðislegu vissuferð laugardaginn 9. maí nk.

    Mæting Hátún 6a, skrifstofa FVB kl. 11:00.

    Lagt verður af stað með rútu kl. 11:30

    og haldið austur á bóginn. Hægt verður að koma við í Hveragerði sækja fólk þangað ef vilji er fyrir því. Ferðin mun standa fram á kvöld og er áætlað að koma til baka 23:00. Stoppað verður á heimleiðinni við Húsasmiðjuna Grafarholti, Kringluna og að lokum í Hátúni.

    Við ætlum að heimsækja Sólheima í Grímsnesi og kynnast þessu listræna, skapandi, alþjóðlega og umhverfisvæna andrúmslofti sem ríkir á staðnum sem hefur sterkt aðdráttarafl. Loftið lyktar af grasrót og dugnaði. Umhverfið er fagurt og mannlífið margbrotið. Farið verður í gönguferð með leiðsögn um svæðið og vinnustofur sóttar heim. Einnig verður komið við í  versluninni Völu og notið veitinga í lífræna kaffihúsinu Grænu könnunni

    Þaðan verður farið og borðað Cafe Mika sem er í hjarta Reykholts sem er lítill byggðarkjarni í Biskupstungum og á miklu jarðhitasvæði. Aðal atvinnugreinarnar eru garðyrkja, ýmist blóm eða grænmetisframleiðsla.

    Útsýnið er stórfenglegt, fjöll og falleg náttúran sama hvert litið er, heitir hverir, Geysir, eldfjöll, mikilfenglegir fossar og jökul ár. Ævintýrin bíða ferðamannsins við hvert fótmál

    Að loknum snæðingi er haldið á vit ævintýranna. Komið verður við á skemmtilegum stað í nágrenni Flúða, notið útsýnis, léttra drykkja og andað að sér vorloftinu (ef veður leyfir). Auðvitað verður söngbók félagsins með í för og skynsamlegt væri að hafa úlpu meðferðis.

    Ráðlegt er að taka með létt drykkjarnesti til að njóta á meðan keyrslu stendur.

    Verð er kr. 4.500 allt innifalið nema

    drykkir sem eru á kostnað hvers og eins

    Þeir sem óska eftir því að rútan stoppi í Hveragerði vinsamlega sendið póst á [email protected]

    Hlökkum til að sjá ykkur með gleðina að leiðarljósi

    Skráning er á heimasíðu félagsins og lýkur 30. apríl

    Ekki missa af þessu – takmarkaður sætafjöldi í boði

    Skemmtilega Skemmtinefndin

     

      Close Popup

      Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

      Close Popup
      Privacy Settings saved!
      Friðhelgisstillingar

      Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


      Tæknilegar vafrakökur
      Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
      • wordpress_test_cookie
      • wordpress_logged_in_
      • wordpress_sec

      GDPR stillingar
      Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
      • CookieConsent

      Hafna öllum vafrakökum
      Save
      Samþykkja allar vafrakökur