Dagsetning: 2017-05-15
Tími frá: 09:00 – 12:30
Staðsetning: Promennt, Skeifunni 11b
Verð: 5.500
Hámarksfjöldi: Það sem salurinn leyfir
Síðasti skráningardagur: 2017-05-04
Lýsing
Maí námskeið hjá fræðslunefnd FVB 2017
Work shop Excel
ATH. námskeiðin verða send út með skype eins og áður fyrir landsbyggðina.
Námskeiðin verða haldin í Promennt Skeifunni 11b í tölvuveri, mánudaginn 15.maí kl. 9.00-12.30 og þriðjudaginn 16.maí kl. 9.00-12.30.
Boðið verður uppá morgunverðar hressingu frá kl. 8.30-9.00
Kennari
Sigurður Friðriksson kennari og fyrrv. Skólastjóri. Hefur og er að kenna Excel hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins.
Námskeiðsefni mánudaginn 15. maí:
Á þessu námskeiði er farið í gegnum hagnýt atriði í notkun Excel og er fókusinn aðallega á helstu verkfæri Excel sem geta nýst bókurum sem best í daglegri vinnu við úrvinnslu og framsetningu gagna í Excel ásamt áætlanagerð. Kennslan fer fram í formi verklegra æfinga þar sem þátttakendur vinna verkefni undir leiðsögn kennara.
- Sérstök áhersla lögð á allar aðgerðir sem hraða vinnslu í Excel ásamt flýtiskipunum og fylgir með hefti með upptalningu helstu flýtiaðgerða.
- Notkun innbyggðra reiknifalla kennd og æfð. Lögð er áhersla á að þátttakendur skilji uppbyggingu falla frá grunni .
- Helstu föllin sem tekin verða fyrir: vlookup, if, sumif, countif, averageif, iferror, isblank
- Dagsetningar og dagaföll í Excel ásamt daga og tímaútreikningi í Excel.
- Nokkur fjármálaföll. pmt, nv, pv, rate, irr ofl.
- Hagnýt atriði með greiningarföll. (What if analysis, Data Validation og etv. Data Table)
- Læsingar og aðgangsstýringar reita og svæða í Excel. (Lock – Protection)
- Innflutningur gagna í Excel. (Import from Web, .csv skjöl ofl)
Námskeiðsefni þriðjudaginn 16. maí:
Á þessu námskeiði verður tekið fyrir allt sem snýr að vinnu í Excel með stóra lista og gagnagrunna í Excel ásamt greiningu í Pivot töflum. Eins og á fyrra námskeiðinu verður sérstök áhersla lögð á aðgerðir sem flýta fyrir og hraða vinnslu í Excel. Verkelegar æfingar með lista og gagnagrunna í Excel.
- Töflugerð og útlitsmótun taflna. Farið í gegnum alla helstu kosti sem fylgja því að setja lista og gögn til vinnslu í „TABLE“.
- Röðun og síun gagna í töflu með filterum og framsetning með gagna með skilyrðum.
- Teknar verða fyrir allar aðgerðir og föll til útreikninga og úrvinnslu gagna í stórum gagnagrunnum.
- Pivot greiningar.
- Framsetning gagna í Pivot með „slicer“ og etv myndritum.
- Önnur atriði: Helstu verkfærin og aðgerðir undir File flipanum og stillingar forrits ef tími gefst til.
Þátttakendur fá Excel vinnubók með öllum þeim aðgerðum sem unnið er með á námskeiðinu. Einnig fylgja nokkur hefti á rafrænu formi með gagnlegum leiðbeiningum, Excel Tips&Trips, Custom number format ásamt líkönum til útreikninga á mismunandi lánaformum.
Það er ekki endilega skilyrði að taka fyrri hlutann til að hafa gagn af seinni hlutanum.
Fullt er orðið á námskeiðin 8.og 9.maí og 10.og11.maí
Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið 15.og 16.maí
Það er takmarkað sætaframboð á hvert námskeið
Verð fyrir eitt námskeið 5.500 kr. en 9.500 fyrir bæði. Utanfélagsmenn greiða 8.000 kr. fyrir eitt námskeið en 14.000 fyrir bæði.
Hvert námskeið gefur 4,5 endurmenntunarpunkta.
Skráning er á vef FVB til og með 3. maí Fjöldi þátttakenda takmarkast af fjölda tölva í kennslustofu.
Fræðslunefndin