Meðfylgjandi er dómur héraðsdóms Reykjavíkur í dag í máli forráðamanns einkahlutafélagsins Eignasölunnar Stuðlabergs. Um var að ræða vanskil á virðisaukaskatti, vöntun á skattframtölum, vanrækslu bókhalds og óheimil lán frá félaginu til forráðamannsins og óframtöldum tekjum af þeim sökum.
Niðurstaða dómarans var sú að telja brot forráðamannsins gegn lögum um virðisaukaskatt, gegn lögum um bókhald og lögum tekjuskatt í heild stórfelld og leiða til refsiþyngingar samkvæmt hegningarlögum. Taldi dómarinn brot þessi sýna ófyrirleitinn brotahug og það væri einnig til þess að þyngja refsingu forráðamannsins að hann var löggiltur fasteignasali þegar hann framdi þau.
Refsing forráðamannsins þótti vera hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði. En þar sem langt væri liðið frá því að hann framdi brot sín þætti mega ákveða að refsing þessi félli niður að liðnum 2 árum frá dómsuppsögu að telja, héldi hann almennt skilorð hegningarlaga. Var hann einnig dæmdur til þess að greiða fésekt. Með vísan til málavaxta taldi dómarinn rétt að miða við þrefaldan þann virðisaukaskatt sem vangoldinn var og dæma forráðamanninn til þess að greiða 9.600.000 krónur í sekt og ákveða jafnframt að 75 daga fangelsi kæmi í stað sektarinnar, greiddist hún ekki innan 4 vikna frá dómsbirtingu.