Search
Close this search box.

Persónuverndarstefna FVB

Með persónuverndarstefnu FVB er lagður grunnur að því að tryggja öryggi persónuupplýsinga félagsmanna og öryggi vinnslu persónuupplýsinga þeirra, þar á meðal hvaða upplýsingar eru unnar, hvernig og í hvaða tilgangi og hvaða réttindi félagsmenn hafa í því sambandi.

FVB er ábyrgðaraðili vegna vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á þess vegum.

Almennt

  • FVB leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga félagsmanna.
  • FVB leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018)
  • FVB leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sér takmörkuð, að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem félaginu ber að veita félagsmönnum.
  • FVB leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um félagsmenn og að sú vinnsla sé gerð á ábyrgan, öruggan eða löglegan hátt.
  • FVB leggur áherslu á að allar upplýsingar um félagsmenn FVB, sem þeir láta félaginu í té eða sem FVB sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.

Persónuupplýsingar

FVB safnar og varðveitir persónuupplýsingar félagsmanna. Sem dæmi má nefna samskiptaupplýsingar, reiknings- og bókhaldsupplýsingar og námskeiðsþátttöku. Aðeins er safnað nauðsynlegum upplýsingum um félagsmenn í samræmi við þá þjónustu sem þeir sækja til FVB.

FVB ábyrgist:

  • Að nota aðeins persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi.
  • Að þegar persónuupplýsingum félagsmanna er deilt með þriðja aðila, í lögmætum tilgangi, t.d. vegna tæknilegs viðhalds eða þjónustu vegna greiðslu (hér með þriðju aðilar), skuldbindur FVB sig til þess að vinnsla slíkra upplýsinga takmarkist við þá þjónustu sem inna skal af hendi.
  • Að tryggja fullan trúnað þriðju aðila við vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga.
  • Að félagsmenn FVB séu eigendur að sínum eigin persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki og stjórnarmönnum FVB.

Réttur hins skráða

FVB leitast við að tryggja að réttindi hins skráða séu tryggð hjá félaginu. Með því er átt m.a. við rétt einstaklinga til að fá leiðrétt eða breytt upplýsingum um sig, fá afrit af þeim upplýsingum sem skráð eru hjá félaginu og fá upplýsingum um sig eytt þegar þessi réttindi eiga við. Í sumum tilfellum kann félaginu að vera óheimilt að verða við beiðni um eyðingu persónuupplýsinga, t.d. þegar lagaskylda kveður á um skráningu persónuupplýsinga. Þegar vinnsla byggir á samþykki einstaklings á hann rétt til að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkisins fram að afturkölluninni.

Einstaklingur hefur ávallt rétt til að kvarta undan meðferð FVB á persónuupplýsingum hans til Persónuverndar en nánari upplýsingar um stofnunina má finna á www.personuvernd.is Frekari upplýsingar um rétt hins skráða hjá FVB má nálgast með því að hafa samband í tölvupóstfangið [email protected]

Tölfræðilegar samantektir

FVB áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi félagsins, til dæmis fyrir ársskýrslu FVB, fréttabréf og á fundum á vegum félagsins.

Heimasíða FVB

Á heimasíðu (vefsvæði) félagsins, kann félagið að safna tæknilegum upplýsingum um notkun, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á vefsvæðinu, heildartímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra. Engum pesónugreinanlegum upplýsingum skal safnað saman við slíka vinnslu.

Upplýsingar til 3. aðila

FVB skuldbindur sig að ekki afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar félagsmanna FVB til þriðja aðila nema félaginu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt skriflegri beiðni félagsmanns.

Bókhaldsgögn

Bókhaldsgögn FVB eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast jafnframt við lög þess efnis.

Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber FVB enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfeldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu FVB.

FVB ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

Breytingar

FVB áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu FVB.

Tengiliðaupplýsingar

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu FVB skaltu hafa samband við okkur hér: Skrifstofa FVB, tölvupóstfangið; [email protected]

FVB leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem félagsmenn FVB treysta félaginu fyrir.

Samþykkt af stjórn FVB í ágúst 2018

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur