Search
Close this search box.

Frumvarp til laga um breytingá lögum um tekjuskatt og fleiri lögum. Sameining skattumdæma.

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fleiri lögum í 113. greinum.
Með fumvarpinu er lagt til að skattumdæmum verði fækkað og þau sameinuð. Einnig að verkaskipting milli ríkisskattstjóra og skattstofa breytist.

Markmið breytinganna er að er að auka hagkvæmni og ná fram lækkun kostnaðar í rekstri skattkerfisins án þess að það bitni á þjónustu og afköstum skattyfirvalda.

Lagt til að landið verði gert að einu skattumdæmi undir yfirstjórn embættis ríkisskattstjóra.

Gert er ráð fyrir starfsemi á skattstofum. Ein af tillögunum er sú að á höfuðborgarsvæðinu muni ein skattstofa starfa og staðsett í Hafnarfirði.
Einnig að reknar verði skattstofur á Vesturlandi, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi undir yfirstjórn ríkisskattstjóra.  Alls eru þetta því  fimm útstöðvar frá  embætti ríkisskattstjóra sem stýrt skal af forstöðumönnum. Verkefnum  verði dreift  með fjarvinnslu.  

Í  frumvarpinu er gert ráð fyrir að einungis verði eitt stjórnsýslustig og úrskurðir ríkisskattstjóra því endanlegir að því er varðar þær ákvarðanir sem hægt hefur verið að áfrýja frá skattstjórum til ríkisskattstjóra. Í frumvarpi þessu eru hins vegar ekki gerðar breytingar á hlutverki yfirskattanefndar

Samandregið má segja að  meginefni frumvarpsins sé sú breyting að í stað níu skattstjóra og ríkisskattstjóra verði þessi embætti sameinuð í eitt embætti ríkisskattstjóra.  Eru því felldar niður tilvísanir til embættis skattstjóra í hinum ýmsu lögum og  hið sameinaða embætti sett inn  í þess stað.

Sjá frumvarp

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur