REGLUGERÐ um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2010.
Nr. 1087 30. desember 2009 REGLUGERÐ
um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2010.
1. gr.
Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2009 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2010. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármálaráðherra. Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.
Fyrirframgreiðslu búnaðargjalds vegna álagningar ársins 2011 er jafnað á fimm gjalddaga á árinu 2010, þ.e. frá 1. ágúst til 1. desember.
2. gr.
Þar til álagning ársins 2010 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2009 og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2009. Við skiptingu fyrirframgreiðslu-skyldu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 2.000 kr. á hverjum gjalddaga.
Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, iðnaðarmálagjald, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald.
Menn skulu fyrirframgreiða tekjuskatt, útsvar, iðnaðarmálagjald, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald eftir því sem kveðið er á um.
3. gr.
Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:
Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. ágúst, 1. september og 1. október. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra og slysatrygging vegna heimilis-starfa skal vera einn, 1. ágúst.
Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. er 1. nóvember.
Gjalddagi tryggingagjalds utan staðgreiðslu er 1. ágúst.
4. gr.
Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjald-daga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.
Vanskil gjaldanda að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar gjaldandans falla í eindaga 15 dögum eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en 15. dag næsta mánaðar eftir að álagningu er lokið.
5. gr.
Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2010 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkis-skattstjóra til ákvörðunar. Sama gildir eftir því sem við á um lækkun á fyrirframgreiðslu búnaðar-gjalds á árinu 2010 vegna álagningar 2011.
6. gr.
Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2009 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2008 og ef fyrirsjáanlegt er að búnaðargjald breytist um sem nemur a.m.k. 25%, þó að lágmarki 10.000 kr. á milli ára. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.
Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar. Nr. 1087 30. desember 2009
7. gr.
Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila. Ákvörðun ríkisskattstjóra skal vera endanleg á stjórnsýslustigi
8. gr.
Um greiðslur þinggjalda á árinu 2010 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt með síðari breytingum.
9. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, 3. mgr. 6. gr. laga nr. 84/1997, um búnaðargjald, með síðari breytingum og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 30. desember 2009.
F. h. r.
Guðmundur Árnason.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
__________
B-deild – Útgáfud.: 31. desember 2009