REGLUR fjármálaráðherra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2010.
Nr. 1089 30. desember 2009 REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2010.
Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2010 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu rekstrarársins 2010.
Búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa afhendingu þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa, sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og mats-verðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.
Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2010 er sem hér segir:
kr.
Mjólk ……………………………………………………………………………… 71 hver lítri
Egg ………………………………………………………………………………… 408 hvert kg
Kartöflur …………………………………………………………………………. 48 hvert kg
Rófur ……………………………………………………………………………… 96 hvert kg
Lambakjöt ………………………………………………………………………. 470 hvert kg
Kjöt af veturgömlu fé ……………………………………………………….. 315 hvert kg
Annað kjöt af sauðfé ………………………………………………………… 107 hvert kg
Ungnautakjöt …………………………………………………………………… 467 hvert kg
Annað kjöt af nautgripum …………………………………………………. 296 hvert kg
Folaldakjöt ………………………………………………………………………. 240 hvert kg
Annað kjöt af hrossum ……………………………………………………… 127 hvert kg
Grísakjöt …………………………………………………………………………. 288 hvert kg
Annað svínakjöt ………………………………………………………………. 203 hvert kg
Kalkúnar, endur og gæsir ………………………………………………….. 407 hvert kg
Annað fuglakjöt ……………………………………………………………….. 320 hvert kg
Fiskur …………………………………………………………………………….. 250 hvert kg
Fjármálaráðuneytinu, 30. desember 2009.
F. h. r.
Guðmundur Árnason.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
__________
B-deild – Útgáfud.: 31. desember 2009