Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara verður haldinn föstudaginn 17.mars, 2023 og
hefst kl. 16:00 á Grand Hótel – salur Gallerí. Húsið opnar kl. 15:30
Skráning fer fram á heimasíðu FVB
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra
2. Tilnefning fundarritara og tveggja atkvæðateljara
3. Skýrsla formanns og stjórnar, umræður um skýrsluna og hún borin upp til samþykktar
4. Gjaldkeri leggur fram ársreikning félagsins fyrir 2022, umræður um ársreikninginn og
hann borinn upp til samþykktar eða synjunar
5. Skýrslur nefnda og umræður um þær
6. Kosning formanns og varaformanns
7. Kosning meðstjórnenda
8. Kosning varamanna í stjórn
9. Kosning skoðunarmanna reikninga og eins til vara
10. Kosning nefnda
a. Fræðslunefnd og varamenn
b. Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) og varamenn
c. Skemmtinefnd
11. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs
12. Tillaga stjórnar um félagsgjald og inntökugjald næsta reikningsárs
13. Önnur mál