Aðalfundardagur – námskeið
14. nóvember 2014
Icelandair hótel Reykjavík Natura,
Nauthólsvegi 52, Víkingasalir
Frítt fyrir félagsmenn fvb og kr. 8.000 fyrir þátttakendur utan félags.
Dagskrá:
13:00 – 14:30 Sigurður Jónsson – Tölvu og verkfræðiþjónustunni
Excel: Hagnýt atriði fyrir bókara
Ekki er mælt með að þátttakendur taki með sér tölvu.
14:30 – 14:40 Stutt hlé
14:40 – 15:30 Framhald – Sigurður Jónsson
15:30 – 16:00 Kaffihlé
16:00 – 17:15 Aðalfundur fvb
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra.
2. Tilnefning fundarritara og tveggja atkvæðateljara.
3. Skýrsla formanns og stjórnar, umræður um skýrsluna og hún borin upp til samþykktar.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir ársreikning félagsins, umræður um ársreikninginn og hann borinn upp til samþykktar.
5. Skýrslur nefnda og umræður um þær.
6. Lagabreytingar.
7. Kosning formanns og varaformanns.
8. Kosning meðstjórnenda.
9. Kosning varamanna í stjórn.
10. Kosning skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
11. Kosning nefnda.
a. Fræðslunefnd og varamenn.
b. Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) og varamenn.
c. Skemmtinefnd.
12. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
13. Tillaga stjórnar um félagsgjald og inntökugjald næsta reikningsárs.
14. Önnur mál.
Atkvæðagreiðslur fara fram eftir því sem fundarstjóri kveður nánar á um. Þó skal skrifleg
atkvæðagreiðsla fara fram ef einhver fundarmanna krefst þess.
Námskeiðið gefur 4,5 endurmenntunareiningar og aðalfundur gefur 3 einingar
Skráning fer fram á síðu félagsins www.fvb.is og síðasti skráningardagur
er 11. nóvember 2014
Hlökkum til að sjá ykkur !!!!!!!