Ágætu félagsmenn
Á aðalfundi FVB í nóvember 2014 voru samþykktar þessar lagabreytingar:
- 19. gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
- 15. gr. Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í mars ár hvert
Stjórn fvb boðar því til aðalfundar FVB 26. mars 2015 kl. 16.30
Ársreikningar félagsins verða þó aðeins síðustu þrír mánuðir ársins 2014 og einnig verður skýrsla formanns og stjórnar mjög stutt í þetta skipti.
Vonumst til að sem flestir félagsmenn sjái sér fært að mæta á fundinn.
Stjórn FVB
Aðalfundur fvb
26. mars 2015
Staðsetning – Grand Hotel
Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Salur – Gullteigur A.
Kl. 16.30 – 18.00
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra.
2. Tilnefning fundarritara og tveggja atkvæðateljara.
3. Skýrsla formanns og stjórnar, umræður um skýrsluna og hún borin upp til samþykktar.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir ársreikning félagsins, umræður um ársreikninginn og hann borinn upp til samþykktar.
5. Skýrslur nefnda og umræður um þær.
6. Lagabreytingar.
7. Kosning formanns og varaformanns.
8. Kosning meðstjórnenda.
9. Kosning varamanna í stjórn.
10. Kosning skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
11. Kosning nefnda.
a. Fræðslunefnd og varamenn.
b. Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) og varamenn.
c. Skemmtinefnd.
12. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
13. Tillaga stjórnar um félagsgjald og inntökugjald næsta reikningsárs.
14. Önnur mál.
Allir félagsmenn eru að sjálfsögðu velkomnir en vegna skipulagningar fundarins eru félagsmenn beðnir um að skrá mætingu á heimasíðu fvb.
Loka skráningardagur er 25. mars 2015