Sæl öll
Ársreikningaskrá mun leggja á stjórnvaldssektir vegna vanskila á ársreikningum og samstæðureikningum, sbr. ákvæði 1. mgr. 120. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga, að morgni dags fimmtudaginn 16. september næstkomandi. Skili félög inn ársreikningum Ársreikningaskrá vill ítreka að ekki er verið að veita félög frest til að skila ársreikningum og samstæðureikningum umfram það sem er kveðið á um í lögum. Aðeins að álagning stjórnvaldssekta verður miðið við fimmtudaginn 16. september.
Þau örfélög sem nýta sér rafræna lausn ríkisskattstjóra og skila hnappsreikningum hafa, sbr. ákvæði 2. mgr. 109. gr. laga nr. 3/2006, sama frest og ríkisskattstjór veitir skattaðilum til að skila framtölum sínum sem er föstudagurinn 1. október næstkomandi. Ársreikningaskrá mun því fella niður stjórnvaldssektir vanskila á þau félög sem skila ársreikningi á tímabilinu 16. september og fyrir miðnætti sunnudaginn 4. október næstkomandi.
Ef spurningar vakna þá getið þið haft samband við mig og ég mun reyna að svara þeim.
Kveðja / Regards