“Árétting vegna skattlagningar fæðispeninga og dagpeninga15.2.2017
Að gefnu tilefni vill fjármála- og efnahagsráðuneytið árétta eftirfarandi varðandi skattlagningu fæðispeninga og dagpeninga:
Samkvæmt lauslegu mati ráðuneytisins er heildarkostnaður útgerðarinnar vegna greiðslu fæðispeninga sjómanna á fiskiskipum um 2,3 milljarðar króna á ári miðað við gildandi kjarasamninga. Er þá miðað við að fjöldi lögskráningardaga sjómanna sé 1,5 – 1,6 milljónir daga á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag. Áætlað tekjutap ríkisins af þeirri fjárhæð, yrði hún undanþegin skatti, er u.þ.b. 730 m.kr. á ári, en því til viðbótar myndu sveitarfélögin tapa u.þ.b. 330 m.kr. í útsvarstekjum.
1. Sjómenn fá greidda fæðispeninga skv. kjarasamningum og eru þeir breytilegir eftir stærð skipa. Þeir greiða tekjuskatt og útsvar af reiknuðum fæðispeningum, sem eru skilgreindir sem sérstök hlunnindi. Fæðispeningar eru frádráttarbær rekstrarkostnaður hjá útgerðinni og af þeim er greitt tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.
2. Dagpeningagreiðslur eru miðaðar við að verja þurfi dagpeningum að fullu til uppihalds, þ.m.t. kostnaðar vegna fæðis. Það er síðan skattyfirvalda að meta hvort á móti þessum dagpeningum standi nægilega há útgjöld með hliðsjón af árlegu skattmati.
3. Almennt háttar svo um aðra launþega að þeir borga fyrir fæði sem vinnuveitandi tryggir þeim, t.a.m. í mötuneytum, með tekjum sem þegar hafa verið skattlagðar.”