Search
Close this search box.

AUGLÝSING frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.

11. janúar 2010

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu
fólksbifreiða skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2009 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum, skal vera sem hér segir:

1.        Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.

2.        Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2009 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 14,1% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2009. Vextir reiknast af fyrningargrunni.

3.        Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2009, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

Reykjavík 11. janúar 2010.

__________________________________

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

B-deild – Útgáfud. janúar 2010

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur