frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.
Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2015 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:
1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrn-ingum.
2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2015 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 6,3% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2015. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2015, hvort sem leigu-tímabilið hefst eða því lýkur á því ári.
Reykjavík, 16. desember 2015.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
__________
B-deild – Útgáfud.: 28. desember 2015