Viljum við benda félagsmönnum okkar að íhuga hvort þeir telji ástæðu til breytinga á samþykktum félagsins, en eins og segir í 26.gr samþykkta félagsins þarf að geta þeirra í fundarboði sem þarf að senda út skv. 15.gr. með 2 vikna fyrirvara.
Einnig viljum við hvetja félagsmenn til að íhuga framboð til setu í stjórn eða nefndum félagsins.
Minnum við líka á að skv. 9.gr. að ef einhver félagsmaður hefur unnið mikilvæg störf í þágu félagsins eða stéttarinnar í heild getur aðalfundur kjörið slíkan mann heiðursfélaga enda beri stjórn félagsins fram tillögu þar að lútandi.
Auglýsing birtist síðar !
Stjórnin