Aðalfundur Fvb verður haldinn 10. nóvember n.k. (sjá viðhengi). Það er mikilvægt að mæta á aðalfund og því væntum við þess að sem flestir láti sjá sig.
Hafa 3 stjórnarmeðlimir ákveðið að láta af störfum. Rannveig Lena, Þórdís og Gyða hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram, eins er þegar ljóst að breytingar verða í endurmenntunarnefndinni. Það er því kjörið tækifæri núna fyrir félagsmenn til að bjóða sig fram í stjórn félagsins eða nefndir og um leið að hafa meiri áhrif á framtíð félagsins en almennur félagsmaður getur gert.
Endilega sendið staðfestingu um mætingu á aðalfundinn sem fyrst á netfangið: [email protected].