Vélræn ákvörðun um fyrirframgreiðslu barnabóta kann að vera röng ef skattaðili:
hefur slitið hjúskap eða sambúð, hefur flutt til landsins á tekjuárinu, óskar eftir skattalegri heimilisfesti námsmanns, eða er með tekjur af eigin atvinnurekstri
Á gömlu vefsíðu skattstofunnar í Reykjavík var að finna eyðublað sem skattstofan hafði útbúið vegna umsóknar um leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum.
Þetta eyðublað er nú að finna lítið breytt á www.rsk.is sem RSK 3.18
Á rsk.is er að finna tilkynningu um þetta nýja eyðublað, en annars má nálgast eyðublaðið á http://rsk.is/eydublod/rsk3/