Starfslýsing
Leitum að starfsmanni sem er tilbúinn til að vinna krefjandi vinnu m.a.:
-
# Bóka fylgiskjöl, stemma af banka, skuldunauta og lánadrottna
-
# Reikna út laun og búa til reikninga, vinna afstemmingar í lok árs vegna ársreikningagerðar
-
# Unnið er með DK hugbúnað
Vinnuaðstaða er góð.
Menntunarkröfur
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun en góður kostur ef umsækjandi hefur lokið prófið frá HR sem viðurkenndur bókari eða sambærileg reynsla.
Kröfur um reynslu
# Starfið krefst töluverðrar bókhaldskunnáttu
# Krafa er gerð um haldgóða þekkingu á Excel, Word og Outlook
Æskilegir eiginleikar
# Leitað er að starfsmanni sem á auðvelt með mannleg samskipti og sem hefur þjónustulund
# Sem getur starfað töluvert sjálfstætt, hann þarf að geta unnið skipulega og hafi til að bera þolinmæði og jákvætt lífsviðhorf
# Metnaður, heiðarleiki, staðfesta og léttleiki
Annað
# Reyklaus, hreint sakavottorð og ekki á vanskilaskrám
Svör sendist á [email protected]